141. löggjafarþing — 12. fundur,  26. sept. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[17:10]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég er náttúrlega ánægður með að ég skyldi hafa stýrt þeirri ríkisstjórn, ég vissi nú ekki til þess á þeim tíma, hún gerði ýmislegt sem ég var ekki hrifinn af.

Varðandi Kárahnjúkavirkjun var engin rammaáætlun til. Þá var ekki búið að leggja faglegt mat á það hvað við vildum virkja og hvað við vildum ekki virkja. Það er einmitt það sem ég batt vonir við að rammaáætlun mundi gera, þ.e. að sætta með faglegum hætti sjónarmið þeirra sem vilja virkja og hinna sem ekki vilja virkja. Nú kemur hæstv. ríkisstjórn og brýtur það samkomulag. Hæstv. umhverfisráðherra brýtur það samkomulag því að hún tekur nokkrar virkjanir út úr þessu faglega mati og setur það í verndarflokk. Það gefur (Gripið fram í.) mér og öðrum virkjunarsinnum von um það að ef við komumst til valda getum við gert nákvæmlega það sama. Við getum vikið frá faglegu mati verkefnisstjórnarinnar og farið að virkja. Þegar búið er að virkja eina á verður hún ekki óvirkjuð aftur, það er ekki hægt að breyta henni aftur. Mér sýnist því að verndunarsinnar séu að tapa á þeirri græðgi sinni að hætta að virkja.