141. löggjafarþing — 12. fundur,  26. sept. 2012.

vernd og orkunýting landsvæða.

89. mál
[18:06]
Horfa

Forseti (Kristján L. Möller):

Ég vil annars vegar biðja þingmenn að gæta enn einu sinni að þeim stutta tíma sem veittur er í andsvör. Hins vegar vek ég athygli þingmanna á því að einhver bilun er á tímamælingu og ljósi en forseti mun sjá um tímamælingu handvirkt og láta vita þegar tíminn er búinn eins og venjulega.