vernd og orkunýting landsvæða.
Virðulegi forseti. Það sem við mörg óttuðumst í vinnu þingskapanefndar er akkúrat að gerast, að í fyrsta lagi yrði ekki farið eftir því sem var samþykkt í nefndinni og í öðru lagi yrði ekki virt það andlag, ef ég má orða það svo, sem var í vinnu nefndarinnar. Af því hef ég miklar áhyggjur, upp á framhaldið að gera í þeirri nefnd.
Þetta er eitt stærsta atvinnumál samtímans, ekki bara umhverfismál þótt það sé líka stórt umhverfismál að þessi áætlun fái eðlilega framvindu í þinginu.
Annað vil ég líka taka fram, frú forseti. Hér er talað um að efna til átaka. Það var efnt til átaka þegar stjórnarflokkarnir fóru að „víla og díla“ með einstaka þætti í þessari áætlun. Þá byrjaði átakaferlið, ef ekki fyrr. Það sem er hér að gerast er að stjórnarflokkarnir virðast vera búnir að semja um það sín á milli að fara á svig við þau þingsköp sem hér voru samþykkt með einhverjum hrossakaupum milli flokkanna. Það er mjög slæmt þegar mál er komið í slíkan farveg. Það er alveg skýrt að mínu viti, miðað við vinnu í þingskapanefnd, miðað við nefndarálit þingskapanefndar, miðað við ræður sem hér hafa verið haldnar og miðað við þingsköpin sjálf, að þetta mál á að fara í atvinnuveganefnd.