vernd og orkunýting landsvæða.
Virðulegur forseti. Sem iðnaðarráðherra mælti ég á síðasta þingi fyrir þingsályktunartillögunni sem hér er rætt um og horfði á hlutverk umhverfis- og samgöngunefndar og atvinnuveganefndar. Hvað þessa þingsályktunartillögu varðar skarast hlutverk þessara nefnda ótvírætt. En sem iðnaðarráðherra með forræði á málinu lagði ég til að þingsályktunartillagan færi til atvinnuveganefndar en öllum var ljóst að sú nefnd mundi vinna með hv. umhverfis- og samgöngunefnd að málinu.
Nú er forræði komið á hendur hæstv. umhverfis- og auðlindaráðherra. Og enn og aftur, þar sem hlutverkin skarast en gætu verið á beggja höndum, þá finnst mér eðlilegt þar sem forræði er komið í hendur umhverfis- og auðlindaráðherra að þingsályktunartillagan fari til umhverfis- og samgöngunefndar (Forseti hringir.) en vitanlega verði gott samstarf við hv. atvinnuveganefnd.