141. löggjafarþing — 13. fundur,  27. sept. 2012.

tólf ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011--2022.

172. mál
[17:09]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Eins og ég gat um fyrir örskotsstundu þá er ræða mín mjög á sama veg og í fyrra skiptið. Ég mæli nú fyrir þingsályktunartillögu um 12 ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011–2022 og vísa til þess að áætlunin var áður lögð fram á þingi og þá flutti ég ítarlega ræðu um málið.

Í greinargerð með tillögunni er ítarlegt mál og ég vísa til þess en að öðru leyti ætla ég ekki að hafa fleiri orð í upphafi þessarar umræðu en legg til að málinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. umhverfis- og samgöngunefndar þingsins.