141. löggjafarþing — 14. fundur,  8. okt. 2012.

staða aðildarviðræðnanna við ESB.

[16:13]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Frú forseti. Hæstv. ráðherra fékk spurningarnar fyrir fram en kaus að svara þeim ekki. Ég ætla að gera eins og hann og draga saman niðurstöðu úr þessari umræðu og þeim svörum sem bárust frá ráðherranum.

Í fyrsta lagi stoppar makríllinn sjávarútvegskaflann og kaflann um erlendar fjárfestingar. Opnunarviðmiðum hefur verið hótað varðandi sjávarútvegsmálin og varðandi makrílinn. Ráðherra svaraði engu um skjólið margumrædda. Ég tek því þannig að ráðherra sé sammála því að um ekkert yrði að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamning um gjaldmiðilsmálin. Stóra gulrótin sem sífellt er verið að klifa á — stóra gulrót Samfylkingarinnar um evruna — yrði ekki í aðildarsamningi, yrði ekki í pakkanum og ekki yrði kosið um það. Nú spyr ég hæstv. ráðherra einu sinni enn: Er þetta réttur skilningur hjá mér?

Ráðherra svaraði heldur ekki spurningunni um hvaða Evrópusambandi hann væri að sækja um aðild að. Hann svaraði því til að það yrði alla vega ekki sambandsríki. Þarna gerast merkileg tíðindi. Hann er sem sagt að lýsa sig ósammála vini sínum og félaga Barroso. Það var inntakið í ræðu Barrosos þann 12. september sl. að Evrópusambandið þyrfti að þora að segja orðin, ef ég man nákvæmlega tilvitnunina í hann.

En til að gleðja ráðherrann, til að hann þurfi ekki að eyða meiri tíma í það, get ég algjörlega glöð lýst stuðningi mínum við stefnu Sjálfstæðisflokksins sem er á þann veg að leggja skuli umsóknina til hliðar og hefja hana ekki að nýju (Forseti hringir.) nema þjóðin hafi tekið ákvörðun um það. Þetta er ekki flókið og þetta þarf ekki að ræða frekar í þessari umræðu.