141. löggjafarþing — 14. fundur,  8. okt. 2012.

skipulag sérstakrar umræðu.

[16:21]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf):

Frú forseti. Sú hugmynd sem hv. þingmaður varpar fram er jákvæð. Ég hef áður tekið undir að það væri sjálfsagt að skipta í sundur skýrslu utanríkisráðherra meðan við erum í þessu aðildarferli og mönnum er ákaflega heitt í hamsi, og hafa annars vegar sérstaka skýrslu, munnlega eða skriflega eftir atvikum, til umræðu hér og hins vegar öll önnur mál sem heyra undir utanríkismál. Ég hef áður sagt að mér fyndist það ágætt og það kemur meira en fyllilega til greina.