Náttúruminjasafn Íslands.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa fyrirspurn og þessa knöppu umræðu. Ég ætla að nefna tvö atriði, annað sem varðar framtíðina og hitt sem varðar nútíðina.
Það er til mikils vansa að við Íslendingar höfum ekki komið okkur upp myndugu náttúrugripasafni. Það er gríðarlega mikilvægt að við eignumst slíkt safn, metnaðarfullt safn þar sem eru stundaðar rannsóknir, þar sem munum er safnað á skipulegan hátt og þar sem vísindamiðlun fer fram með sýningum og annarri fræðslustarfsemi — safn á borð við Þjóðminjasafn Íslands og Listasafn Íslands eins og hér hefur verið nefnt. Þetta er mjög stórt og fjárfrekt verkefni sem krefst vandaðs og góðs undirbúnings.
Ég fagna hugmyndinni um að setja í millitíðinni upp náttúrusýningu í Perlunni þangað til að við getum stigið skrefið til fulls og farið inn í náttúrugripasafn. (Forseti hringir.) Slík sýning mun sérstaklega verða æsku landsins upplyfting. — Frú forseti. Ég held að klukkan hafi ekki verið alveg rétt.
Ég vil geta þess að ég mun á næstu dögum kynna þingsályktunartillögu um að hafin verði að nýju undirbúningur að byggingu náttúruhúss (Forseti hringir.) í Vatnsmýri þar sem safnið á lóð frá fyrri tíð.