141. löggjafarþing — 19. fundur,  16. okt. 2012.

fyrirgreiðsla ríkisins við fjármálafyrirtæki og stofnanir í kjölfar bankahrunsins.

[14:43]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Katrín Júlíusdóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrir þá umræðu sem hér hefur orðið og það er alveg ljóst að við eigum að halda áfram að brjóta þessi mál til mergjar. Án efa er margt sem við eigum eftir að sjá koma út úr því. Ég tel að sú leið sem farin var hér á landi hvað varðar endurreisn bankanna hafi verið sú leið sem kom sér best fyrir Ísland og íslenskt þjóðarbú. Hætt var við því á tímabili að ríkið þyrfti að fjármagna nýju bankana að fullu, sem telst vera 385 milljarða kr. pakki. Í stað þess var farin sú leið sem endaði á því að ríkið þurfti að leggja út tæpa 140 milljarða. Ríkið sparaði sér þannig skuldsetningu og þar með var niðurskurðarþörfin líka minni.

Virðulegi forseti. Það er erfitt að bera okkar leið saman við leiðina sem Írar fóru þar sem þeir dældu peningum inn í bankakerfið. Þeir fóru ekki þá leið sem við fórum. Ef meira en 30% af heildarskuldum Íra eru vegna endurreisnar bankakerfisins, samanber orð hv. þm. Eyglóar Harðardóttur, þá eru 28% hjá okkur, með skuldinni vegna Seðlabankans, tæplega helmingurinn af þessu.

Virðulegi forseti. Ríkið fer nú með eignarhaldið í stærstu fjármálastofnunum landsins. Það er vandasamt hlutverk og er rætt eins og kunnugt er af sérstakri stofnun sem er Bankasýsla ríkisins. Með því fyrirkomulagi hefur tekist að takmarka mjög pólitísk afskipti af þessum mikilvægu stofnunum. Það er mín skoðun að ríkið eigi þegar færi gefst að minnka eignarhluti sína í þessum fjármálafyrirtækjum, meðal annars til að draga úr skuldum ríkissjóðs. Ég er þeirrar skoðunar að dreifð eignaraðild að bönkunum í framtíðinni sé mikilvæg og að ríkið fari áfram með leiðandi hlut í einni fjármálastofnun.

Ég vonast til þess, virðulegi forseti, að almenningi gefist kostur á að eignast hlut í þeim fjármálastofnunum sem ríkið mun selja á næstu árum. Nú er kominn tími til að horfa til langrar framtíðar í þessum efnum. Það er mjög mikilvægt að vandað verði til verka að þessu sinni. Það hefur þessi ríkisstjórn gert í störfum sínum við það vandasama verkefni sem að baki er, og það vandasama verk sem er fram undan.