skólatannlækningar.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin, þau eru að mörgu leyti skiljanleg hvað varðar skólatannlækningar sem slíkar. En ég vil undirstrika það sem hann kom líka inn á í svari sínu, þ.e. að eftir 11 ár er ekki enn búið að semja við tannlækna, meðal annars vegna tannlækninga fyrir börn. Það tekur engu tali að hafa þetta með þessum hætti. Samningar verða að nást við tannlækna af því að menn sjá það vítt og breitt um landið að þetta er farið að koma niður á tannheilsu barna.
Ábyrgðin liggur að hluta til hjá ráðherra og líka hjá þinginu hvað varðar fjárveitingar og að sjálfsögðu eiga tannlæknar líka að sjá sóma sinn í því að setjast niður og semja. Það er ljóst að það þarf að ná þessum samningum. Menn segja að það sé ekkert endilega vinsælt að taka slaginn með tannlæknum en þeir hafa hins vegar verið að benda á ýmsa þætti sem tengjast tannheilsu barna sem vert er að gefa gaum. Varðandi þetta fyrirkomulag þá er leiðin ekki sú að fara í beinan og óbeinan ríkisrekstur á tannlækningum fyrir börn. Ég held að það ógni meðal annars jafnræði barna um land allt hvað varðar rétt til tannheilsu.