skólatannlækningar.
Hæstv. forseti. Svarið við spurningu hv. þingmanns er afdráttarlaust já. Það er gríðarlega mikilvægt að skólarnir komi að heilbrigðismálum, líka varðandi tannheilsu, fari í forvarnavinnu bæði í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
Sett hefur verið af stað átak sem heitir Heilsueflandi skólar og er mjög jákvætt og tannheilsan þarf að vera þar undir og þó ekki sé nema til þess að í skipulegum viðtölum sé verið að beina fólki til tannlæknis. En þá þarf líka að vera hægt að tryggja að fólk ráði við að greiða þá þjónustu.
Það hefur komið fram í óformlegum athugunum að milli 20–30% skila sér ekki reglubundið til tannlæknis og það er allt of hár hluti. Hvað veldur? Það eru ekki eingöngu kostnaðarþættirnir sem hafa áhrif heldur ýmislegt annað, viðhorfið til þessara hluta, við höfum þarna misst niður forvarnavinnuna.
Gripið hefur verið til aðgerða. Í fyrra var til dæmis boðið upp á ókeypis tannviðgerðir fyrir hópinn sem hafði lægstar tekjur. Það voru um og yfir 900 börn sem nýttu sér þá þjónustu, eða foreldrar þeirra. Tenging er við grunnskólann í gegnum heilsugæsluna og skólahjúkrunarfræðingana og líka í gegnum ungbarnaeftirlit og í gegnum leikskólana. Þannig að þetta skiptir máli.
Ég tek undir það með hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur að samningar verða að nást. Ég vil taka fram að í þeim hópi sem ég minntist á hafa tannlæknar verið afar jákvæðir hvað það varðar að leita lausna á þessum vanda, greiðslur hins opinbera hafa sigið jafnt og þétt þangað til við hækkuðum þetta núna 50% þar sem við náum þó ekki að borga nema að meðaltali í kringum 60% en markmiðið hefur verið að borga að minnsta kosti 75% og helst 100% fyrir barnafólk.
Þessi vinna heldur áfram og nú verður það í höndum þingsins og okkar sameiginlega að finna hvort við getum náð samningum og stigið fyrstu skrefin á næsta ári í átt til betri tannheilsu.