ætlað samþykki við líffæragjafir.
Virðulegur forseti. Sem 1. flutningsmaður vil ég þakka fyrir þau góðu viðbrögð sem þetta mál fær. Mig langaði að koma tveimur sjónarmiðum til viðbótar á framfæri hérna.
Ég vil í fyrsta lagi taka undir það með hv. þm. Jónínu Rós Guðmundsdóttur að stundum á fólk erfitt með að vinna úr sorginni þegar dauðinn knýr skyndilega dyra, á kannski erfitt með að taka slíka ákvörðun og segir kannski nei þess vegna. Það er líka mjög merkilegt að heyra í fólki sem bregst eiginlega þveröfugt við, þ.e. það tekst betur á við sorgina af því það getur sagt já við líffæragjöf. Nýlega var grein í blöðum um foreldra sem misstu ungt barn. Þau sögðu já við líffæragjöf úr sínu barni. Þau lýstu því í greininni að það hefði auðveldað þeim að takast á við barnsmissinn vegna þess að þau vissu að líffærin úr barninu þeirra björguðu lífi annarra barna. Þau fengu upplýsingar um að ákveðnir einstaklingar — það er ekki nafngreint hverjir fá líffærin en þeim var sagt að hjartað hefði nýst og ákveðin líffæri voru nefnd í því sambandi. Þeim fannst það mjög gott. Þau sættu sig betur við sorgina og gátu unnið betur úr henni vegna þessa.
Séra Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur skrifaði nýlega grein í blöðin þar sem hann lýsti því að það hefði hjálpað mörgum í sorginni að geta sagt já fyrir hönd aðstandenda sinna, hvort sem fólk vissi hvað hinn látni vildi eða ekki. Þegar fólk heimilar líffæragjöf úr látnum aðstandanda fær það að vita um afdrif líffæranna þó að ekki sé farið í persónugreiningar í því sambandi, það fær skjal til baka. Sumir höfðu sett það skjal í möppur með minningargreinum um þann sem féll frá. Hann nefndi líka dæmi um að fólk hefði rammað skjalið inn og sett það upp á vegg, að það hafi verið stolt af því að hafa getað bjargað lífi annarra með því að heimila líffæragjöf.
Ég þekki líka dæmi um mann sem féll frá í slysi og systur hans heimiluðu líffæragjöf. Ég veit ekki af hverju en þær vissu alla vega hvenær líffærin voru tekin úr bróður þeirra og gátu fylgst með því þegar þau fóru út í sjúkrabíl og var ekið niður á Reykjavíkurflugvöll þar sem flugvél beið til að fljúga með líffærin út. Þær eltu sjúkrabílinn og biðu eftir að flugvélin færi í loftið — þær voru sem sagt að kveðja líffæri bróður síns. Það fannst þeim gott, þær kusu að gera það. Þessi gjöf — þetta er lífgjöf til annarra — getur hjálpað fólki mikið í sorginni.
Ég vildi koma þessu sjónarmiði á framfæri því að stundum er talið að það sé erfitt og sligandi að taka slíka ákvörðun, en hún getur líka verið mjög góð þegar á hólminn er komið. Fólk sættir sig betur við sorgina og veit að það hefur gert mikið góðverk með líffæragjöfinni.
Á málþingi hjá Rótarýklúbbi Borgarness heyrði ég hve líffæraþegar eru þakklátir líffæragjafa sínum. Það er mér sérstaklega minnisstætt þegar ung stúlka sem hafði fengið lifur lauk ræðu sinni með því að ávarpa líffæragjafann og segja: „Þakka þér fyrir lifrina mína.“ Þá var þetta orðin lifrin hennar og bjargaði hennar lífi.
Hitt sjónarmiðið sem ég vildi fá að koma á framfæri í lokin er einmitt það sem hv. þm. Ragnheiður Ríkharðsdóttir kom inn á, og reyndar líka hv. þm. Jónína Rós Guðmundsdóttir, þ.e. að við ættum að klára þetta mál. Það kom hér fram að ekki náðist að klára þetta mál í lokahnykknum í vor. Það er rétt og það er vegna þess að umræða um allt annað mál tók allan tímann. Kannski hélt einhver að þetta mál tæki tíma í umræðunni, en ég held að það hefði ekki tekið mikinn tíma af því að þokkalega mikil samstaða var um það. Að vísu höfum við heyrt hv. þm. Pétur H. Blöndal tala gegn þessari aðferð, hann vill frekar að fólk merki við þetta á skattskýrslunni. Hann er jákvæður gagnvart líffæragjöf sem slíkri og telur það mjög gott mál að gefa líffæri.
Málþóf getur eyðilagt mörg góð mál á endasprettinum, mál sem búið er að vinna faglega, mál sem þingheimur allur er jafnvel sammála um eða nánast allur, mál sem skýr meiri hluti er fyrir. Í því sambandi velti ég því fyrir mér — ég veit að svo er um fleiri þingmenn, t.d. hv. þm. Þór Saari o.fl. — hvort í þetta skipti væri hægt að reyna að gera einhvers konar samkomulag á milli þingflokka um að taka ákveðin þingmannamál sem eru vel unnin og skoða þau faglega. Nefndirnar standa heils hugar á bak við málin — getum við ekki bara tekið þau fram fyrir og klárað þau þannig að þau lendi ekki í soginu sem er á síðustu dögum þings rétt fyrir jól og í vor? Þá steindrepast hér góð mál af því allt er í málþófi og allir sitja eftir með vont eftirbragð í munninum yfir því að hafa ekki klárað þessi góðu mál.
Mér finnst að það ætti að koma til skoðunar, og ég held að það séu kannski helst formenn þingflokka sem gætu sest yfir það, að gera einhvers konar samkomulag. Það gæti hljóðað á þá leið að við mundum taka þessi mál upp — þau yrðu bara talin upp — og stefna að því að klára þau fyrir jól. Ekkert endanlegt samkomulag yrði í því fyrr en nefndirnar hefðu farið yfir málin og skilað af sér svo að menn gætu verið vissir um að ekkert nýtt hafi komið upp. Svo væri hægt að fara aftur yfir þennan lista, kannski í byrjun desember, og rumpa þessum málum í gegn. Þá sætum við ekki uppi með þetta vonda eftirbragð yfir því að málþóf hefði skemmt stórgóð mál. Svo þarf auðvitað að taka á málþófinu með því að breyta þingsköpum en það er bara stærri pakki.
Ég hef flutt slíkt mál og tel að einhvern tímann verði að samþykkja það. Ég er viss um að það verður gert. Menn munu ekki sætta sig við það í framtíðinni að hér verði endalaust málþóf og málum verði þvælt fram og til baka og örfáir menn í bakherbergjum ákveði hvað fer í gegn á endasprettinum. Það verður ekkert liðið til framtíðar, við munum frekar taka inn annan neyðarhemil fyrir stjórnarandstöðuna, sem er sá að minni hluti þings geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um mjög umdeild mál, að það verði neyðarhemillinn, ekki hið svokallaða málþóf sem farið er að misnota. Málþóf er ekki eingöngu notað sem neyðarhemill, það er stundum notað til að skemma stórfín mál og það alveg óvart.
Þar sem ekki er búið að breyta þingsköpum legg ég til, í ljósi þessarar umræðu hjá þeim hv. þingmönnum sem tekið hafa þátt í henni, að við reynum að fá þingflokksformenn okkar til að semja um að ákveðin góð þingmannamál sem þokkalega mikil samstaða er um, fái að klárast hér í tíma.