141. löggjafarþing — 24. fundur, 23. okt. 2012.
félagsleg aðstoð.
36. mál
Virðulegur forseti. Ég fagna því ef það er að koma fram þingmál þar sem er farið í heildarendurskoðun á þessum pakka öllum saman. Jú, ef það er tekið þannig á bifreiðastyrksmálunum í frumvarpinu á þeim nótum sem þetta litla frumvarp segir og sem velferðarnefnd samþykkti í raun á síðasta þingi sé ég ekkert því til fyrirstöðu að við vinnum með það. Ef það verður til þess að flýta þessu ferli öllu tel ég að við hljótum að sameinast um að gera það og er bara ánægður ef þessir þættir eru þar inni.