141. löggjafarþing — 25. fundur,  24. okt. 2012.

störf þingsins.

[15:04]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að óska þingheimi til hamingju með alþjóðlegan baráttudag kvenna, dag Sameinuðu þjóðanna, og jafnframt benda á þá ánægjulegu staðreynd að fjórða árið í röð hefur Alþjóðaefnahagsráðið birt skýrslu um kynjajafnrétti í heiminum og Ísland trónir þar efst á listanum. Að sjálfsögðu er margt óunnið í jafnréttismálum á Íslandi þrátt fyrir að við séum í fyrsta sæti á þessum lista.

Ég er komin hingað upp, frú forseti, til að beina orðum mínum til formanns fjárlaganefndar. Mikið hefur verið rætt um þörf fyrir endurnýjun tækjabúnaðar á Landspítalanum og sjúkrahúsinu á Akureyri. Því miður er þetta ekki nýr vandi eða vandi sem tengist hruninu heldur hluti af vanrækslusyndum Sjálfstæðisflokksins á ofþensluárunum. Alþingi er mjög vel meðvitað um þennan vanda.

Að frumkvæði velferðarráðherra hefur Landspítalinn lagt fram fjárfestingaráætlun í tækjabúnaði sem nær til þeirra tækja sem bráðast er að endurnýjuð verði. Þá hefur að frumkvæði ráðherra verið sett í heilbrigðisáætlun ákvæði um að sjúkrahús og heilbrigðisstofnanir leggi fram áætlanir um tækjakaup á tveggja ára fresti svo aðstæður eins og uppi eru núna heyri sögunni til.

Ég vil spyrja hv. formann fjárlaganefndar um mögulegar viðbótarfjárveitingar til tækjakaupa í fjárauka 2012 og fjárlögum 2013. Samkvæmt þeirri fjárfestingaráætlun sem Landspítalinn og sjúkrahúsið á Akureyri hafa gert þarf viðbótarfjárveitingu upp á 200 millj. kr. í fjárauka 2012 og 650 millj. kr. í fjárlögum 2013. Ég vil spyrja hv. formann fjárlaganefndar hvort nefndin sé að fjalla um þessi mál.