141. löggjafarþing — 25. fundur,  24. okt. 2012.

störf þingsins.

[15:14]
Horfa

Ragnheiður E. Árnadóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á því að taka undir hvert einasta orð hjá hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur og óska okkur konum til hamingju með daginn, og okkur öllum, og tilkynna það hér að ég fer rakleiðis úr ræðustól til að kaupa miða á landsleikinn.

Mig langaði að ræða svarta atvinnustarfsemi. Í fréttum í gær var greint frá því að undanskot hafi aldrei verið meiri. Þá var fyrst og fremst verið að greina frá rannsókn í ferðaþjónustugeiranum en einnig tók fréttin til fyrirtækja í byggingariðnaði. Nú vil ég segja strax í upphafi að ég tel að ferðaþjónustan sé ekkert einsdæmi í þessu ömurlega máli. Ég held að þetta sé allt of útbreitt vandamál í öllum greinum þjóðfélagsins og mér finnst við þurfa að taka höndum saman um að uppræta það.

Tökum samt aðeins ferðaþjónustuna.

Ríkisstjórnin boðar skattbreytingar í ferðaþjónustunni og nefnir meðal annars að það sé gert til að koma í veg fyrir undanskot í ferðaþjónustu. Hver er baráttuaðferð ríkisstjórnarinnar? Hún er sú að hækka virðisaukaskatt á gistingu úr 7% upp í 25,5%. Ég segi: Þessi baráttuaðferð er algjörlega merkingarlaus og gagnslaus vegna þess að þá fyrst verður það orðið einhvers virði að stinga undan skattinum. Ég er hins vegar alveg sammála því að það að einhver telji sér hag í því að stinga undan 7% virðisaukaskatti er algjörlega óásættanlegt og við þurfum að taka höndum saman, hvar sem við stöndum í flokki eða hvaða skoðanir sem við höfum á skattamálum almennt, um að uppræta þetta. Þá verðum við ekki síður sem neytendur að taka höndum saman vegna þess að einhverjir kaupa starfsemi án þess að greiða af henni skatt. (Forseti hringir.) Við verðum að tryggja að slíkt verði talið óhugsandi og óásættanlegt af okkur öllum.