141. löggjafarþing — 27. fundur,  25. okt. 2012.

Stjórnarráð Íslands.

248. mál
[11:53]
Horfa

Frsm. meiri hluta stjórnsk.- og eftirln. (Valgerður Bjarnadóttir) (Sf):

Virðulegi forseti. Með frumvarpinu er lagt til að ráðherrar leggi mál skriflega fram fyrir ríkisstjórn og einungis þegar sérstaklega stendur á verði heimilt með samþykki forsætisráðherra að víkja frá þeirri skyldu. Byggist afgreiðsla máls í ríkisstjórn á öðrum sjónarmiðum en koma fram í minnisblaði ráðherra um málið er lagt til að gerð verði grein fyrir því í fundargerð. Þá er lagt til að dagskrár ríkisstjórnarfunda verði gerðar opinberar að fundum loknum, kynntar fjölmiðlum með tilkynningu og birtar á vefsvæði Stjórnarráðs Íslands. Þá eru lagðar til breytingar á upplýsingalögum sem fela í sér að veita skuli aðgang að fundargerðum ríkisstjórna þegar liðin eru átta ár frá því að gögnin urðu til nema undanþágur laganna eigi við vegna einka- eða almannahagsmuna.

Með samþykkt frumvarpsins fellur brott ákvæði 4. mgr. 7. gr. laganna um hljóðritun ríkisstjórnarfunda sem tekur að öðrum kosti gildi 1. nóvember nk. Einnig eru felld burt ákvæði um að færa sérstaka trúnaðarmálabók þar sem færa átti þau atriði fundargerðar sem hafa að geyma upplýsingar sem falla undir takmarkanir upplýsingaréttar vegna einkahagsmuna og almannahagsmuna.

Eins og komið hefur fram hér á undan óskaði nefndin eftir umsögn allsherjar- og menntamálanefndar um málið en nefndin taldi sér ekki fært að verða við því vegna tímaskorts.

Meiri hlutinn telur það í samræmi við niðurstöður þingmannanefndar sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis að kveðið verði með þessum hætti á um skriflega framlagningu mála fyrir ríkisstjórn og opinbera birtingu dagskrár ríkisstjórnarfunda. Meiri hlutinn telur að með þeirri breytingu sem lögð er til í frumvarpinu um að veita skuli aðgang að fundargerðum þegar átta ár eru liðin frá því að þau urðu til, nema undanþáguheimildir upplýsingalaga eigi við, svo sem ef upplýsingar eiga að fara leynt vegna einka- eða almannahagsmuna, sé ekki þörf á trúnaðarmálabók.

Undir þetta ritar meiri hluti í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.