141. löggjafarþing — 28. fundur, 25. okt. 2012.
Stjórnarráð Íslands.
248. mál
Herra forseti. Frumvarpið er að mínu mati ekki í anda niðurstaðna skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Málsmeðferðin er vond og ekki í samræmi við niðurstöðu þingsályktunar þingmannanefndar Alþingis sem fjallaði um þessa skýrslu. Ég segi nei.