141. löggjafarþing — 28. fundur,  25. okt. 2012.

skýrsla umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2010.

247. mál
[14:32]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Valgerður Bjarnadóttir) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mig langar að halda áfram með svar mitt þar sem ég hætti í miðjum klíðum áðan. Eitt atriði um meinbugi á lögum varðaði skýringu á stöðu Íslandsstofu og hvort hún félli undir opinberan rétt eða einkarétt. Í morgun komu á fund okkar fulltrúar utanríkisráðuneytisins og þeir sögðu að eftir þetta álit og spurningu frá umboðsmanni og síðan úrskurðarnefnd upplýsingalaga, held ég örugglega að hafi verið nefnt, telji þeir alveg ljóst að Íslandsstofa heyri undir opinberan rétt. Þeir telja hins vegar ekki þörf á lagabreytingu vegna þess en við þurfum kannski að velta því fyrir okkur. Þriðja atriðið varðar meinbugi á lögum, þ.e. spurningu sem send var í fjármálaráðuneytið. Þeir hafa ekki svarað okkur enn en hafa lofað að þeir muni gera það innan skamms, ég held að þeir hafi lofað að svara fyrir mánaðamót.

Við erum náttúrlega í þessari nefnd sem hefur gífurlega mikið að gera. Ég tala nú ekki um þegar við erum með stjórnarskrána sjálfa til meðferðar, en ég er sammála hv. þm. Ólöfu Nordal um að við eigum að reyna að nota skýrsluna betur og hafa áhrif að eigin frumkvæði. Allt er það í mótun. Við erum með gífurlegan skýrslufjölda, til dæmis frá Ríkisendurskoðun, um stór og smá málefni. Kannski er þar verið að gefa út skýrslur um of smá málefni. Við þurfum að vinna þetta í sameiningu og skoða hvernig við fetum þá braut þar sem þessi nýja nefnd er. Ég er mjög ánægð með að mikill (Forseti hringir.) einhugur er í nefndinni um að reyna að gera það sem best.