141. löggjafarþing — 28. fundur,  25. okt. 2012.

hollustuhættir og mengunarvarnir.

287. mál
[16:05]
Horfa

umhverfis- og auðlindaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir. Megintilgangur frumvarpsins er að innleiða þrjár EB-gerðir í íslenskan rétt og að styrkja framkvæmd norræna umhverfismerkisins hér á landi. Þá er í frumvarpinu ákvæði um færanlega starfsemi og endurskoðun starfsleyfa. Þær gerðir sem lagt er til að innleiddar verði eru reglugerð EB nr. 66/2010, um umhverfismerki Evrópusambandsins, tilskipun 2008/50/ EB, um loftgæði og hreinna loft í Evrópu og tilskipun 2001/81/EB frá 23. október 2001, um landsbundin efri mörk losunar fyrir tiltekin loftmengunarefni.

Frumvarpið var lagt fram á 140. löggjafarþingi. Dálitlar breytingar voru gerðar á frumvarpinu í samræmi við þær umsagnir sem bárust, en að öðru leyti er það óbreytt frá síðasta þingi.

Lagðar eru til breytingar á gildandi lögum hvað varðar heimild til handa ráðherra til að setja almenn ákvæði um framkvæmd mengunarvarnareftirlits í reglugerð. Þessi ákvæði varða í fyrsta lagi ákvæði um umhverfismerki á vörur og þjónustu, m.a. um umsóknir, mat á umsóknum, veitingu merkjanna og eftirlit með þeim, svo og gjaldtöku.

Í öðru lagi eru nánari ákvæði um losunarbókhald fyrir tiltekin loftmengunarefni, mat á losun loftmengandi efna, losunarspá, varnir gegn loftmengun, þar sem m.a. skulu koma fram viðmiðunarmörk fyrir loftgæði, mengandi efni og losun þeirra út í andrúmsloftið, aðgerðaáætlanir, upplýsingaskyldu stjórnvalda til almennings varðandi loftgæði, svo og skyldu starfsleyfishafa til þess að veita þeim sem eftirlit hafa með ákvæðum starfsleyfis upplýsingar um losun mengandi efna og loftgæði og framsetningu upplýsinga.

Í þriðja lagi er lagt til að ráðherra geti í reglugerð sett nánari ákvæði um starfsleyfisskyldu fyrir færanlega starfsemi og eftirlit heilbrigðisnefnda með slíkri starfsemi.

Færanleg starfsemi merkir starfsemi sem eðli sinnar vegna er færanleg milli staða. Komið hafa upp vafamál í framkvæmd um þau tilvik þegar starfsemi hefur verið veitt starfsleyfi á svæði einnar heilbrigðisnefndar, en í ljós kemur að á öðru svæði er ekki farið að ákvæðum um starfsleyfi eða starfsemin er að einhverju leyti ekki hagað í samræmi við lög. Óvissa í þeim efnum getur leitt til þess að ekki verði brugðist við brotum á reglum um hollustuhætti og mengunarvarnir.

Samkvæmt gildandi lögum er útgefanda starfsleyfis heimilt að endurskoða starfsleyfi áður en gildistími þess er liðinn vegna breyttra forsendna, svo sem ef mengun af völdum atvinnurekstrar er meiri en búist var við þegar leyfið var gefið út. Komi í ljós við endurskoðun að nauðsynlegt reynist að gefa út nýtt starfsleyfi er kveðið á um að fara skuli eftir þeim reglum sem gilda um það. Ef nauðsynlegt er að gefa út nýtt starfsleyfi er mikilvægt að hefja það ferli sem fyrst. Því er lagt til í frumvarpinu að útgefandi starfsleyfis skuli taka ákvörðun um endurskoðun leyfisins og tilgreina forsendur endurskoðunar og leiðbeina starfsleyfishafa um hvaða gögn hann þurfi að senda inn til að unnt sé að hefja undirbúning að útgáfu á nýju starfsleyfi.

Reglugerð um umhverfismerki Evrópusambandsins, sem nefnt er Blómið, kveður á um stofnun og notkun á valfrjálsu umhverfismerkjakerfi Evrópusambandsins og kemur í stað eldri reglugerðar sem tekin var upp í EES-samninginn og var innleidd hér á landi með reglugerð um umhverfismerki árið 2006. Norræna umhverfismerkið Svanurinn hefur verið í notkun á Norðurlöndunum í rúma tvo áratugi. Umhverfisstofnun hefur umsjón með því merki á Íslandi.

Lagt er til nýtt ákvæði um umhverfismerki í frumvarpinu og að kveðið verði á um helstu skilyrði þess að umhverfismerki verði veitt vöru eða þjónustu.

Umhverfismerkingar gegna mikilvægu hlutverki við að draga úr umhverfisálagi í framleiðslu og þjónustu. Þykir mikilvægt að hvetja til notkunar þeirra sem eru skýr, aðgengileg og gefa myndræn skilaboð til neytenda um að viðkomandi vara eða þjónusta valdi almennt minna umhverfisálagi en önnur vara eða þjónusta á markaði. Er þess vegna kveðið á um það að þeim sem veitt hefur verið leyfi til að auðkenna vörur með umhverfismerki sé heimilt að nota það í auglýsinga- og kynningarskyni.

Jafnframt er mikilvægt að umhverfismerki séu ekki misnotuð, að neytendur séu ekki blekktir með skilaboðum um að veitt hafi verið umhverfismerki, liggi ekki formleg viðurkenning þess efnis og því er lagt til að öll notkun umhverfismerkja eða auglýsing vöru og/eða þjónustu sem gefi til kynna að umhverfismerki hafi verið veitt án þess að formleg viðurkenning þess efnis liggi fyrir sé óheimil.

Ástæða þykir að kveða sérstaklega á um gjaldtöku fyrir umhverfismerki, en hún er að nokkru leyti ólík annarri gjaldtöku. Norræn samvinna er um gjaldtöku fyrir umhverfismerkið Svaninn. Miðað er við að þjónusta hins opinbera sé að mestu borin uppi af innheimtum gjöldum. Samstarf hefur orðið um að Norðurlöndin innheimti gjöld hvert fyrir annað. Við ákvörðun gjalds fyrir opinbert eftirlit með notkun umhverfismerkis hefur þótt eðlilegt að miða við veltu viðkomandi vöru- eða þjónustutegundar í þessu sambandi og er það talin einföld aðferð. Er reynslan sú að þjónusta opinberra aðila er almennt meiri eftir því sem umfang framleiðslu eða þjónustu er meira.

Þörf fyrir eftirlit eykst til dæmis í hlutfalli við umfang og dreifingu vöru og þjónustu. Þar sem það að fá viðurkennda umhverfismerkingu á vöru eða þjónustu er valfrjálst og því lögmæt aukaþjónusta hjá viðkomandi stjórnvaldi er talið heimilt að haga gjaldtöku þannig að innheimt verði árgjald sem tengt er við veltu og er því kveðið á um að heimilt sé að innheimta árgjald sem tengist henni.

Tilskipun um landsbundin efri mörk losunar fyrir tiltekin loftmengunarefni, svokölluð þaktilskipun, hefur það að markmiði að vernda umhverfið og heilsu manna gegn skaðlegum áhrifum súrrar ákomu, ofauðgunar jarðvegs og áhrifum ósons við yfirborð jarðar. Auk þess er gerðinni ætlað að vinna að því langtímamarkmiði að halda loftmengun innan marka sem nauðsynleg eru til að koma í veg fyrir skaðleg áhrif á lífríki og heilsu manna og að vernda fólk gegn heilsufarsvandamálum sem stafa af loftmengun.

Tilskipun um gæði andrúmslofts og hreinna lofts í Evrópu hefur það að markmiði að meta loftgæði í aðildarríkjum, afla upplýsinga um loftgæði, vinna gegn loftmengun og skaða af hennar völdum, ásamt því að hafa eftirlit með langtímaframvindu loftgæða og bættum loftgæðum, svo og að tryggja að upplýsingar um loftgæði séu gerðar aðgengilegar almenningi. Jafnframt er markmið tilskipunarinnar að viðhalda loftgæðum þar sem þau eru mikil en bæta þau ella.

Lagt er til í grein sem verður 6. gr. d, að ábyrgðaraðilar starfsemi sem hefur í för með sér losun mengandi efna í andrúmsloft skuli gera viðeigandi ráðstafanir, þar með talið með umhverfisstjórnun og hreinsibúnaði, til að draga úr slíkri losun eftir því sem nánar er mælt fyrir um í reglugerð.

Lagt er til að ráðherra skuli í reglugerð skilgreina og setja markmið um loftgæði, uppsetningu, staðsetningu og rekstur mælistöðva og um skyldu atvinnurekstrar sem háður er starfsleyfi til að veita upplýsingar um loftgæði og losun mengandi efna út í andrúmsloftið.

Í því skyni að vinna gegn loftmengun og skaða af hennar völdum og til að hafa eftirlit með framvindu og bættum loftgæðum er lagt til að Umhverfisstofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaganna afli upplýsinga, meti loftgæði, setji upp og reki mælistöðvar og tryggi að upplýsingar um loftgæði séu aðgengilegar almenningi samkvæmt nánari ákvæðum.

Þá er lagt til að heilbrigðisnefndir sveitarfélaganna skuli hver á sínu svæði gefa út staðbundna áætlun um loftgæði þar sem meðal annars á að setja fram tímaáætlun vegna úrbóta, aðgerðir og stefnumörkun. Heilbrigðisnefndir geta gefið út áætlanir einar og sér eða í samvinnu við aðrar heilbrigðisnefndir. Þá er kveðið á um að nefndirnar skuli vinna viðbragðsáætlanir sem taka til skammtímaaðgerða varðandi loftgæði á svæði hlutaðeigandi heilbrigðisnefndar.

Samkvæmt gildandi lögum hefur Umhverfisstofnun yfirumsjón með heilbrigðiseftirliti og skal sjá um að vöktun og rannsóknir séu framkvæmdar. Heilbrigðisnefndum ber að sjá um að ákvæðum reglugerðar um loftgæði sé framfylgt.

Gert er ráð fyrir að Umhverfisstofnun beri þannig áfram ábyrgð á loftgæðavöktun og heilbrigðisnefndir haldi áfram að afla upplýsinga, meta loftgæði á sínu svæði, setja upp og reka mælistöðvar eftir því sem þörf er á til að sinna hlutverki sínu, svo og að tryggja að upplýsingar um loftgæði séu aðgengilegar almenningi, t.d. á vefsetrum sínum.

Nú framkvæma sveitarfélög tilteknar mælingar á loftgæðum og upplýsa íbúa um loftgæði. Sem dæmi má nefna að á vef Reykjavíkurborgar eru birtar upplýsingar um loftgæði og á vefjum einstakra annarra heilbrigðiseftirlitssvæða. Rétt er að benda á að mögulegt er að gera áætlun sem nær yfir fleiri en eitt heilbrigðiseftirlitssvæði og ætti slíkt fyrirkomulag að auka hagkvæmni.

Þá er lagt til að Umhverfisstofnun haldi bókhald yfir losun tiltekinna efna sem menga andrúmsloftið, setji fram losunarspá og reki loftgæðastjórnunarkerfi samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð. Þá er jafnframt kveðið á um að Umhverfisstofnun skuli flokka og meta svæði og þéttbýlissvæði með tilliti til loftgæða samkvæmt nánari ákvæðum í reglugerð.

Í frumvarpinu er lagt til að ráðherra gefi út til tólf ára í senn almenna áætlun varðandi loftgæði sem gildir fyrir landið allt. Gert er ráð fyrir að í áætluninni komi fram mælanleg markmið, upplýsingar um loftgæði í landinu og tímaáætlun, aðgerðir og stefnumörkun til að bæta loftgæði. Lagt er til að Umhverfisstofnun auglýsi drög að aðgerðaáætlun í sex vikur þannig að hagsmunaaðilar, almenningur og stjórnvöld fái tækifæri til að gera athugasemdir við hana. Almenningi skal tryggður aðgangur að áætluninni, m.a. á vefsetri Umhverfisstofnunar.

Ef sú hætta er fyrir hendi að styrkur mengunarefna í andrúmslofti á tilteknu svæði eða tilteknum þéttbýlisstað fari yfir umhverfismörk er gert ráð fyrir að Umhverfisstofnun geri aðgerðaáætlun með það að markmiði að draga úr hættu sem af því ástandi stafar eða stytta tímabilið sem ástandið varir.

Þá er kveðið á um í lok greinarinnar, sem verður 6. gr. d, að Umhverfisstofnun skuli tryggja að almenningur og hlutaðeigandi hagsmunasamtök, svo sem umhverfissamtök, neytendasamtök, samtök sem annast hagsmuni viðkvæmra hópa fólks — þar má nefna hópa eins og astma- og lungnasjúklinga — aðrir viðeigandi aðilar á sviði heilsugæslu og viðkomandi samtök atvinnulífsins fái nægar upplýsingar m.a. um gæði andrúmslofts og áætlanir um loftgæði. Þessar upplýsingar á að veita með góðum fyrirvara.

Loks er kveðið á um að upplýsingar skuli vera aðgengilegar á vefsetri Umhverfisstofnunar. Gert er ráð fyrir að ráðherra setji í reglugerð nánari ákvæði um hvaða upplýsingar ber að veita og framsetningu þeirra,

Virðulegur forseti. Ég hef rakið meginefni frumvarpsins og legg til að því verði að lokinni 1. umr. vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.