141. löggjafarþing — 28. fundur,  25. okt. 2012.

gatnagerðargjald.

290. mál
[16:15]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um gatnagerðargjald, nr. 153/2006, með síðari breytingum. Lagt er til að 1. tölulið ákvæðis til bráðabirgða við lögin verði breytt þannig að í stað dagsetningarinnar 31. desember 2012 komi dagsetningin 31. desember 2015.

Tillaga að frumvarpi þessu kom í ráðuneytið að frumkvæði Sambands íslenskra sveitarfélaga og var frumvarpið fullunnið í ráðuneytinu í kjölfarið. Ástæða þess að Samband íslenskra sveitarfélaga átti frumkvæði að því var sú að ítrekaðar óskir varðandi þetta höfðu borist sambandinu frá sveitarfélögum á landsbyggðinni sem ekki sáu fram á að geta lokið öllum gatnagerðarframkvæmdum fyrir árslok 2012 vegna bágrar fjárhagsstöðu þeirra. Er því lagt til að 1. töluliður bráðabirgðaákvæðisins verði lengdur um þrjú ár, eða til 31. desember 2015. Hér er um að ræða svokallað B-gatnagerðargjald, þ.e. til þess að setja bundið slitlag á götur og til lagningar gangstétta.

Fyrstu lögin sem heimiluðu álagningu gatnagerðargjalda voru lög nr. 51/1974. Þar var um að ræða tvenns konar gjöld, annars vegar gjald til gatnagerðarframkvæmda, þ.e. kostnað við að undirbyggja götur með tilheyrandi lögnum og slitlagi, síðar kallað A-gatnagerðargjald, og hins vegar gjald til framkvæmda við að setja bundið slitlag á götur og til lagningar gangstétta, síðar kallað B-gatnagerðargjald.

Nýrri lög um gatnagerðargjöld voru lög nr. 17/1996. Í bráðabirgðaákvæði við þau lög var kveðið á um að eldri lögin skyldu gilda um innheimtu og álagningu B-gatnagerðargjaldsins vegna framkvæmda sem lokið væri innan tíu ára frá gildistöku laganna. Á bráðabirgðaákvæðið því upptök sín í fyrstu lögum um gatnagerðargjald nr. 51/1974. Gildandi lög um gatnagerðargjöld eru lög nr. 153/2006, þau sem hér er lagt til að verði breytt. Í frumvarpi til þeirra laga var ekki gert ráð fyrir að bráðabirgðaákvæðið um B-gatnagerðargjöldin héldi gildi sínu, en við meðferð frumvarpsins á þingi var ákveðið að láta bráðabirgðaákvæðið halda gildi sínu í þrjú ár til viðbótar.

Með lögum nr. 6/2009 var ákveðið að bráðabirgðaákvæðið um B-gatnagerðargjöldin yrði framlengt til 31. desember 2012 vegna efnahagsástandsins. Er nú enn lagt til að bráðabirgðaákvæðið verði framlengt að þessu leyti þannig að 1. tölulið bráðabirgðaákvæðisins verði breytt á þann veg að ákvæðið gildi til 31. desember 2015, eins og áður segir, vegna brýnnar beiðni frá sveitarfélögum á landsbyggðinni sem ekki sjá fram á að geta lokið gatnagerðarframkvæmdum fyrir árslok vegna bágrar fjárhagsstöðu.

Ég hef gert grein fyrir helstu atriðum frumvarpsins og legg til að frumvarpið verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis.