141. löggjafarþing — 29. fundur,  5. nóv. 2012.

tilkynning um skrifleg svör.

[15:07]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að borist hefur bréf frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu um frestun á því að skriflegt berist við fyrirspurn á þskj. 72, um niðurfærslu lána til almennings, frá Einari K. Guðfinnssyni. Tafir hafa orðið á öflun gagna en ráðuneytið mun svara fyrirspurninni eins fljótt og auðið er.

Forseti vill einnig tilkynna að borist hefur bréf frá velferðarráðuneytinu um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 299, um dvalarrými, hvíldarrými og dagvistun fyrir aldraða, frá Björgvini G. Sigurðssyni. Vegna vinnu við úrvinnslu gagna er þess farið á leit við forseta Alþingis að veittur verði frestur til 23. nóvember nk. til að svara fyrirspurninni.