vegarstæði um Gufudalssveit.
Frú forseti. Ég vil spyrja hæstv. innanríkisráðherra hvað líði niðurstöðu varðandi leiðarval vegar í Gufudalssveit, um Þorskafjörð og suður um. Eins og íbúar á sunnanverðum Vestfjörðum og við hér í þessum sal þekkjum vel hefur lítið lát orðið á raunasögu landshlutans í vegamálum. Hún er í stuttu máli svona: Íbúar hafa kallað eftir öruggum láglendisvegi út úr fjórðungnum. Vegagerðin hefur gert margar tillögur, A, B, C, D o.s.frv., og nú síðast leið I.
Íbúar voru sammála stjórnvöldum um að leið B, Þorskafjarðarvegur um Teigsskóg, væri ákjósanlegasti kosturinn þar sem hún yrði láglendisvegur að mestu. Um þá leið hafa hins vegar staðið lagadeilur og áralöng málaferli sem lauk með umdeildum hæstaréttardómi sem hnekkti umhverfismati framkvæmdanna á formsatriði.
Sá dómur var mikið högg fyrir íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum og setti málið allt á upphafsreit. Í augum leikmanns er lítil sanngirni í því fyrir íbúa svæðisins að verða af góðri samgöngubót vegna formgalla í úrskurði þáverandi umhverfisráðherra um framkvæmdina en það tjáir víst lítið að deila við dómarann.
Nú veit ég að hæstv. innanríkisráðherra hefur leitað ásættanlegra lausna á þessum vanda með samráði við fulltrúa Vestfirðinga í samstarfi við Vegagerðina og að nú er verið að skoða leið I, þ.e. brúun Þorskafjarðar og veg handan Teigsskógar austan megin í firðinum. Þetta er leið sem gæti verið ásættanleg lausn hvort sem farið er inn fjörðinn austan megin eða út með honum um Reykhóla.
Ég vil því spyrja hæstv. innanríkisráðherra: Hvar er mál þetta statt? Hversu langt er það komið? Munu Vestfirðingar í náinni framtíð sjá lausn samgönguvandræða sinna á þeim nótum sem þarna hafa verið reifaðar, þ.e. með leið I eða útfærslu á henni?