trúnaður í störfum nefnda.
Virðulegi forseti. Ég vil blanda mér aftur í þetta mál, en ég mun fara formlega fram á það á fundi utanríkismálanefndar í fyrramálið að haldinn verði opinn fundur um þetta mál í nefndinni og einnig að formaður nefndarinnar eða hæstv. ráðherra aflétti þessum trúnaði.
Hv. þingmaður sagði að þarna væri verið að ræða samningsafstöðu Íslands gagnvart þriðja aðila. Það er alveg rétt en hvað gerðist hér áðan? Hæstv. ráðherra kom og sagði: Auðvitað verður ekki hvikað frá þessu, auðvitað munum við standa við varnarlínur Bændasamtakanna.
Nú er ég komin í vanda, en ég get þó haft eftir það sem ég hef sjálf sagt í nefndinni. Ég tel ekki að samningsafstaðan endurspegli það sem hæstv. ráðherra hélt hér fram og nú er ég að hafa eftir honum það sem hann sagði opinberlega. Okkur er því vandi á höndum. Við erum að takast á um hvort við séum (Forseti hringir.) að uppfylla þær kröfur og standa fast á þeim kröfum sem við segjumst vera að gera og ég fer fram á það, frú forseti, að við ræðum það fyrir opnum töldum.