trúnaður í störfum nefnda.
Frú forseti. Það vekur nokkra furðu að fylgjast með umræðum úr þingsal þar sem hæstv. ráðherra kemur upp og segir skýrt og skorinort hver afstaðan er í aðildarviðræðunum og hver samningsmarkmiðin eru, og það má alveg þakka honum fyrir þá skoðun sína, en síðan mega fulltrúar okkar í utanríkismálanefnd alls ekki segja eitt né neitt vegna trúnaðar í málinu.
Ég held að þetta ferli allt undirstriki enn og aftur, sama hvar við stöndum í þessu máli, hvort sem við viljum klára aðildarviðræðurnar eða ekki, að það má ekki ríkja tortryggni gagnvart öllu aðildarferlinu. Ég undirstrika enn og aftur bón og ósk okkar hv. þm. Birgis Ármannssonar í þá veru að hér verði umfangsmikil umræða í þingsal um framvindu Evrópusambandsviðræðna nú þegar. Ég tel mikilvægt að draga fram ýmis atriði, fá fram skoðanir ráðherra, fá m.a. það fram sem hefur verið sagt í utanríkismálanefnd og fá viðameiri umræðu en venja er í sérstökum umræður, sem standa aðeins í hálftíma og fjórar mínútur eru gefnar á hvern flokk. (Forseti hringir.) Ég fer þess á leit við hæstv. forseta að stuðla að því að við tökum hér viðamikla umræðu um stöðu aðildarviðræðna við Evrópusambandið.