141. löggjafarþing — 29. fundur,  5. nóv. 2012.

matsáætlun vegna framkvæmda á Vestfjarðavegi 60.

69. mál
[16:28]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Hér eru nefndar háar tölur og það er svo að sönnu að vegaframkvæmdir af því tagi sem við erum að ræða, þverun fjarða, göng, jarðgöng eru dýrar framkvæmdir og það er mikilvægt að gefa sér góðan tíma til að gaumgæfa rækilega hvaða kosti á að velja. Síðan er það hitt að við verðum að reyna að komast út úr því öngstræti sem þessi umræða hefur komist í á undanförnum árum og út á það hefur starfið gengið á undanförnum missirum að þrengja umræðuna, fækka valkostunum og setja út af borðinu þá kosti sem valda mestum deilum. Þá vísa ég aftur í Teigsskóginn og ég vísa aftur í hálsaleiðina sem ýmsir telja hafa verið besta kostinn, ég er í þeim hópi, svo dæmi sé tekið en heimamenn hafa afdráttarlaust hafnað þessu.

Síðan er það ekki alveg rétt sem sagt er að ég segi að fram hafi komið að öll rök hnigi að því að fara Teigsskógarleiðina. Það eru ýmis rök sem hafa þótt hníga í þá átt. Það er alveg rétt. Sjálfum persónulega, af því vísað er í persónulegar skoðanir manna, þá þótti mér á tíma það vera um sumt hyggilegt. En það eru aðrir sem eru mjög andvígir henni og alveg ljóst að það mundi leiða til harðvítugra málaferla ef reynt yrði að fara þá leið. Hv. þingmaður Ásbjörn Óttarsson spyr að því hvort við höfum vissu fyrir því að sú yrði ekki raunin ef aðrir valkostir yrðu farnir. Ég skal ekkert fullyrða um það.

Ég þakka hv. frummælanda og fyrirspyrjanda (Forseti hringir.) Einari K. Guðfinnssyni fyrir að vekja máls á þessu. Þetta er nokkuð sem brennur á fólki og er mönnum mikið áhugamál að fá lyktir í þetta áralanga deilumál (Forseti hringir.) og við erum að reyna að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að svo verði.