strandsiglingar.
Frú forseti. Mig langar að beina fyrirspurn til hæstv. innanríkisráðherra er varðar strandsiglingar. Þannig er að mörg svæði á landinu búa við mjög háan flutningskostnað. Það kemur mjög illa niður á einkum og sér í lagi atvinnustarfsemi á þeim svæðum. Ég get nefnt fyrirtæki eins og laxeldi á sunnanverðum Vestfjörðum, steinullarverksmiðju á Sauðárkróki, kalkþörungaverksmiðju á Vestfjörðum, svo fáein dæmi séu tekin. Þetta stendur því atvinnuuppbyggingu á þeim svæðum mjög fyrir þrifum.
Á síðasta þingi tók ég upp umræðu við hæstv. innanríkisráðherra um þessi mál og beindi þeirri fyrirspurn til hæstv. ráðherra hvort til stæði að hefja strandsiglingar umhverfis landið og til umræddra svæða. Hæstv. innanríkisráðherra svaraði því svo til að þetta mál væri í undirbúningi og búið væri að taka ákvörðun um að hefja strandsiglingar, þ.e. að þetta væri ekki lengur á skoðunarstigi heldur væri verið að undirbúa framkvæmd verksins.
Nú eru liðnir allmargir mánuðir síðan þau ummæli féllu úr ræðustól Alþingis. Því langar mig að spyrja hæstv. innanríkisráðherra að tveimur spurningum:
Hvenær gerir ráðherra ráð fyrir að strandsiglingar hefjist?
Hvernig verður áætlun um þær háttað, hvernig verður tímaáætlunin og til hvaða staða verður siglt?