141. löggjafarþing — 29. fundur,  5. nóv. 2012.

GSM-samband á Hellisheiði og Suðurstrandarvegi.

229. mál
[17:16]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Hin boðlegu skilaboð eru að segja satt og rétt frá. Það sem við erum að reyna að gera er að koma á GSM-þjónustu um land allt og á vegakerfi landsins. Hvernig gerum við það? Þjónustan er boðin út og á markaðsgrunni koma fyrirtækin þessari þjónustu á. Þar sem svæði tveggja fyrirtækja liggja saman hvetjum við til þess að þau semji um það sem kallað er reiki sín á milli. Alls staðar þar sem fjarskiptasjóður kemur hins vegar að málum, þar sem markaðslögmálin eru ekki við lýði, (Gripið fram í.) tryggjum við það í útboðum okkar að svo verði. Síðan erum við með takmarkaða fjármuni til þessara mála. Hvað er þá gert? Þá er forgangsraðað. Þá er reynt að byggja upp á þeim svæðum sem búa við lakast öryggið. Þannig þéttum við þetta net um land allt.

Það er alveg rétt, ég tek undir það með hv. þingmanni, að við viljum hafa þessi mál í góðu lagi alls staðar á landinu. Við erum smám saman að sauma þetta kerfi saman og þétta upp í þau göt sem eru fyrir hendi. Að sjálfsögðu vona ég að okkur takist að gera það hið allra fyrsta. Ég er einfaldlega að segja hvernig málin standa, hvernig við verjum þeim takmörkuðu fjármunum sem við höfum til ráðstöfunar. Við skulum ekki gleyma því að á sínum tíma var gert ráð fyrir því að fjarskiptasjóður ætti sitt sólarlag og hætti að starfa en einmitt vegna þess að markaðslögmálin hafa ekki fært okkur þá þjónustu sem við helst vildum var ákveðið að framlengja líf hans, m.a. til að ná þeim markmiðum sem hv. þingmaður (Forseti hringir.) vekur hér réttilega athygli á.