rannsókn á einkavæðingu banka.
Frú forseti. Hverfum svo sem 40 ár aftur í tímann. Þá var ég að kaupa mér íbúð. Það gekk ágætlega nema ég fékk hvergi lán sem var dálítið hastarlegt. Ég hafði fengið lán frá seljandanum og svo þurfti ég að brúa bilið. Ég fór eins og aðrir á biðstofur bankanna. Þar var mikil mannþröng og biðraðir út á götu. Maður mátti reikna með tveim, þremur tímum í að ræða við bankastjórann. Þar settist maður niður með flotta áætlun um hvernig maður ætlaði að borga þetta allt saman. Ég er þannig gerður. Ég hitti bankastjórann. Hann hafði engan áhuga á þessari áætlun og spurði bara: Hvað þarftu mikið? Ég sagði: Ég þarf núna um 100 þús. kr. og svo í haust þarf ég aftur 100 þús. kr. — Já, þú talar bara við mig þá. Svo fékk ég 50 þús. kr. Eins og aðrir fór ég í annan banka, það var tískan. Ég tek það fram, frú forseti, að þetta voru víxlar til mjög skamms tíma. Í hinum bankanum fékk ég líka 50 þús. kr., en ég bað um 100 þús. kr. Þannig tókst mér að brúa bilið og kaupa íbúðina. Ég átti ekki réttindi í lífeyrissjóði og Íbúðalánasjóður var einhvern veginn fjarlægur draumur fyrir mig. Ég held ég hafi verið of tekjuhár eða eitthvað svoleiðis.
Um haustið kom ég aftur bjartur og hýr og vildi fá að vita með framhaldið. Ég kom á fund bankastjórans með fínu áætlunina mína og hann byrjaði á því að segja: Við erum búin að loka. Það var búið að loka og ég fór út. Þetta var stuttur fundur. Samt var biðstofan full þennan dag eins og alla aðra. Ég fór í hinn bankann, kom þar inn og þá var sagt: Það er búið að loka.
Frú forseti. Þá þekkti ég nefnilega ekki leiðirnar. Bankaráðin voru pólitískt kjörin og maður átti að fara hingað á þing og tala við ráðherra eða þingmann til að fá fyrirgreiðslu. Ég kunni það ekki. Þetta var ógurlegur barningur og endaði með því að ég neyddist til að tala við ættingja í Þýskalandi um að redda mér yfir áramótin því að það var allt lokað fram að áramótum.
Frú forseti. Svona var staðan. Ég vil minna á það að þegar ég kom inn á þing 1995 var hilla hérna frammi — hvað halda hv. þingmenn að hafi verið á hillunni? Víxileyðublöð allra bankanna. Þar gat maður náð í víxileyðublöð frá Búnaðarbankanum, Landsbankanum o.s.frv. og fyllt út. Svo hringdi viðkomandi þingmaður eða ráðherra, sem var enn þá betra, í viðkomandi bankaráð, bankaráðið hringdi í útibússtjórann á Raufarhöfn eða hvar það var og víxillinn var keyptur. Svona gekk þetta fyrir sig. Enginn fékk lán nema hann þekkti einhvern, það var bara svoleiðis.
Halda menn að ég hafi ekki verið fylgjandi því að selja þetta dót? Halda menn það? Ég vildi ekkert frekar en einkavæða þetta. Það vill svo til að um leið og búið var að einkavæða bankana þá hurfu þessar biðstofur. Biðstofurnar hurfu sem þýddi að það komst jafnvægi á lánamarkaðinn. Fólk fékk lán, líka þeir sem voru ættlausir og flokkslausir eða þekktu engan og kunnu ekki á kerfið — þeir fengu líka lán. Margt varð miklu heilbrigðara. Þessu megum við ekki gleyma þegar verið er að tala um einkavæðinguna.
Fyrir utan það voru margir ráðherrar gerðir að bankastjórum eða fóru í bankaráð þegar þeir hættu sem ráðherrar, og þingmenn voru kjörnir í þessum sal í bankaráð. Bankarnir stjórnuðu öllu landinu og miðunum. Það var ekki byggð sú hlaða úti í sveit eða einhver vél keypt í frystihús að ekki kæmi einhver þingmaður að því. Þetta var ótrúlegt kerfi.
Ég studdi einkavæðinguna mjög eindregið af þeirri ástæðu að fólk sem ekki þekkti einhvern fékk ekki lán. Það kerfi bjó náttúrlega til óskaplega spillingu og væri áhugavert að skoða það allt saman — mjög áhugavert því að spilling er dýr. Það er hægt að rekja fullt af dæmum.
Ég vil nefna það líka að í þrjá áratugi, frá 1950–1980, voru vextir á venjulegri sparisjóðsbók neikvæðir. Seðlabankinn hélt þeim neikvæðum. Þeir voru alltaf fyrir neðan verðbólguna. Það borgaði sig alltaf að skulda og menn töpuðu á því að spara. Þannig var það í 30 ár. Þegar búið var að kenna þjóðinni í 30 ár að skulda og hætta að spara lærði hún það svo vel að hún er ekki búin að gleyma því enn. Hún er enn að eyða og bruðla og sparar ekkert.
Þetta var ástæðan fyrir því að ég studdi einkavæðinguna. Svo hefur komið í ljós, eftir að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis kom fram og allar upplýsingarnar, að það var eitthvað skelfilegt á bak við hana. Komið hefur í ljós að Samson fékk lánað í Kaupþingi til að kaupa ríkisbanka, sem er alveg með ólíkindum. Það var allt annað en mér var sagt. Ekki veit ég hvað var á bak við það. Mig langar til að vita það. Það skiptir ekki máli, frú forseti, hver var við völd akkúrat þá stundina enda held ég að það hafi lengi vel ekki skipt neitt voðalega miklu máli.
Síðan var það þetta með þýska bankann, Aufhäuser, sem ég vil kalla bíó. Einn maður, Vilhjálmur Bjarnason, er búinn að berjast fyrir því í mörg ár að fá upplýsingar um það hvort þessi banki hafi raunverulega keypt hlut í Búnaðarbankanum eða ekki. Hann fær ekki upplýsingar um það. Þetta átti að vera grundvöllurinn, þ.e. að erlendur banki keypti í íslenskum banka til að veita bæði þekkingu og allt það inn í landið.
Ég hef orðið fyrir miklum vonbrigðum með það sem síðar hefur komið í ljós að var þáttur í einkavæðingunni. En ég fer ekki ofan af því að einkavæðingin sjálf er betri en það kerfi sem var áður, enda gat það ekki versnað. Biðstofur bankanna og allt sem var að gerast þá — nei, nei, verra getur það ekki orðið og það er ekki verra í dag.
Fiskveiðisjóður, Iðnlánasjóður og allt þetta biks, vil ég kalla það sem menn voru búnir að búa til, Verslunarbankinn, Iðnaðarbankinn o.s.frv. Menn stofnuðu banka út um allt. Til hvers? Til þess að komast í lánsfé, til þess að komast í innlánin. Það var svo mikill skortur á peningum að menn stofnuðu heilan banka til að fá lán. Allir báru bankarnir þess merki hvað menn ætluðu að gera. Búnaðarbankinn átti að sjá um landbúnaðinn, Útvegsbankinn átti að sjá um útveginn, Verslunarbankinn átti að sjá um verslunina, Iðnaðarbankinn átti að sjá um iðnaðinn o.s.frv. Allir voru að reyna að ná í fé sparifjáreigandans sem brann og brann upp og það var hreinn gróði að taka lán. Það var lán, þ.e. hamingja, að taka lán.
Ég er mjög hlynntur því að þetta verði skoðað og fengnar upplýsingar, ekki endilega til þess að refsa einhverjum eða til að segja: Hey, þú varst í ríkisstjórn! — eða eitthvað svoleiðis, heldur til að læra af því. Hvað gerðu menn rangt og hvað má gera betur?
Ég fellst á það sem hér hefur komið fram að það er munur á fyrri einkavæðingunni og þeirri síðari. Munurinn er mikill en einkavæðing var sú síðari samt sem áður. Af hverju var það einkavæðing, frú forseti? Vegna þess að ríkið stofnaði banka strax eftir hrun, sem betur fer, og bjargaði heilmiklu í sambandi við neyðarlögin. Ríkið átti þessa þrjá banka sem voru stofnaðir og tók yfir öll innlánin og það allt. Þeir bankar breyttu um eignarhald og urðu eign slitastjórnanna. Í mínum huga er það einkavæðing. Hvort hún hafi verið þvinguð, hvort hún hafi verið nauðsynleg og svo framvegis leiðir rannsókn í ljós. Það getur vel verið að menn hafi mjög gild rök fyrir því að hafa gert þetta einmitt svona, ég er ekkert að útiloka það. Ég ætla ekki að setjast í dómarasætið og þykjast vera búinn að rannsaka þetta allt saman, ég er ekki búinn að því.
Ég mundi vilja að þessi tillaga yrði víkkuð. Mér sýnist vera almennur vilji fyrir því að víkka hana yfir í það að taka hina síðari einkavæðingu með, taka allt flæðið frá því að hin fyrri einkavæðing hófst og allt til dagsins í dag. Mér sýnist vera vilji fyrir því. Nú er bara spurning hvaða leið við förum vegna þess að breytingartillaga þarf að liggja fyrir á Alþingi í umræðunni. Ég er ekki einu sinni búinn að semja hana, hvað þá heldur að ég sé búinn að fá vilja fyrir henni. Ég teldi eðlilegast, frú forseti, ef menn geta séð af einum degi að hv. nefnd sem um þetta fjallar semdi slíka breytingartillögu með aðstoð nefndasviðs Alþingis. Það liggur fyrir hvað á að gera. Það liggur fyrir að rannsaka á hina fyrri einkavæðingu og það á að ljúka því á ákveðnum tíma, fyrir 1. september 2013. Síðan gætu menn sagt: Jafnhliða og í framhaldinu verður rannsakað — hvað köllum við það? Við megum kannski ekki kalla það einkavæðinguna hina síðari en það mætti segja: hvernig ríkisbankarnir urðu einkaeign hið síðara — þannig að allur ferillinn liggi fyrir.
Væntanlega kemur ýmislegt í ljós. Ég tel þetta mjög brýnt vegna þess að ég hef þá trú að þessir bankar, alla vega einkabankarnir tveir sem eru kallaðir svo, ekki Landsbankinn, verði einkavæddir og til þess að einkavæða þá þarf almenningur sem ætlar að kaupa að öðlast trú aftur. Hann er búinn að missa trúna. 55 þús. heimili töpuðu nefnilega 80 milljörðum á hlutabréfum í hruninu. Það fólk þarf að fá trú. En það sem gleymist algjörlega í þessari umræðu, það er ekki komið fram og er heldur ekki í nefndarálitinu eða þingsályktunartillögunni, eru hringferlar peninga í hlutabréfaforminu sem ég er endalaust að tala um og er orðinn hundleiður á sjálfum mér. Ég held að ég verði samt að gera það áfram vegna þess að þannig bjuggu menn til þessa gífurlegu peninga sem engin innstæða var fyrir. Það eru engir peningar að baki þessum hringferlum en þeir koma fram í bókhaldinu. Bankarnir urðu óskaplega öflugir og voldugir og sýndu mikið eigið fé sem var ekki til staðar. Svo þegar allt hrundi kom í ljós að það var engin innstæða og í rauninni ekkert eigið fé. Allt í einu fóru menn að sjá afskriftir upp á 20, 30, 40 og 100 milljarða. Frú forseti. 20 milljarðar er óskaplega stór tala. Þetta stafaði af því að menn voru búnir að leika sér að því að láta peninga fara hring eftir hring eftir hring í hlutabréfaforminu, milli banka og annars fyrirtækis og aftur til bankans og fram og til baka. Þetta var mjög skrautlegt og kom reyndar fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Ég held að menn þurfi að skoða þetta fyrirbæri alveg sérstaklega. Því miður getum við ekki lagað það hér á landi vegna þess að þetta er alþjóðlegt vandamál og er um allan heim. Það þarf að laga það alþjóðlega.
Frú forseti. Ég er dálítið uggandi vegna þeirra hlutabréfaútboða sem eiga sér stað þessa dagana. Ég vildi gjarnan að þeir sem standa að þeim hlutabréfaútboðum og eru hugsanlega að fá fólk til að kaupa hlutabréf gæfu út þá yfirlýsingu að þeir mundu aldrei láta peninga fara í hring með þessum hætti. Það mundi róa mig og gæti jafnvel leitt til þess að ég keypti hlutabréf aftur. Ég er brenndur eins og aðrir af því að hafa treyst þeim sem létu peningana fara í hring og bjuggu til eigið fé og plötuðu mig, þýska banka til að lána sér, matsfyrirtækin og alla aðra.
Ég er mjög hlynntur þessari tillögu. Nú er spurning hvort hægt sé að fara þá leið að fresta umræðunni, gefa tíma til að búa til málamiðlunartillögu sem tæki á báðum þessum lausnum og væri gaman að heyra frá framsögumanni málsins hvernig honum litist á þá málsmeðferð að haldinn yrði fundur í fyrramálið þar sem ný tillaga yrði búin til sem væri málamiðlun í þeim anda sem ég er búin að tala um, síðan yrði umræðu fram haldið á morgun, hún yrði þá mjög stutt, og því næst gengið til atkvæða.