rannsókn á einkavæðingu banka.
Virðulegi forseti. Ég tek undir hvert orð hjá hv. þingmanni. Ekki er nóg með það að við stöndum frammi fyrir því að hugsa til framtíðar varðandi afnám haftanna heldur liggur fyrir í fjárlagafrumvarpi ársins 2013 heimild fyrir fjármálaráðherra að hefja sölu á eignarhlutum úr bönkunum. Við erum því raunverulega að fara, ef þannig má orða, í þriðju einkavæðinguna og ekkert liggur fyrir hvernig einkavæðingarferli númer tvö reyndist.
Ég hef farið yfir það að einkavæðingarnefnd var þó starfandi þegar ríkisbankarnir voru einkavæddir árið 2002. Slíkt var ekki til dæmis í síðari einkavæðingunni og ekkert slíkt apparat að baki þeirri einkavæðingu annað en ákvörðun eins manns, ákvörðun þáverandi fjármálaráðherra, hæstv. ráðherra Steingríms J. Sigfússonar, þannig að það sé sagt hér. Það er eins og að bera saman epli og appelsínur hvað varðar fagmennsku hvernig staðið var að þeim tveimur einkavæðingum. Þess vegna tel ég brýnt að farið verði í rannsókn á einkavæðingunni síðari enda hafa, virðulegi forseti, stjórnarliðar komið fram, talað í þessu máli og þeir sjá ekkert athugavert við að einkavæðingin síðari verði rannsökuð. Það sem þeir finna að því er að þeim finnst það bara ekki tímabært, þeir vilja bara ekki gera það núna, ekki samhliða þeirri rannsókn á einkavæðingu bankanna frá 2002 sem þeir eru að leggja til.
Virðulegi forseti. Því miður skil ég ekki svona málflutning. Hvenær á þá að gera það? Núna er tækifærið. Verið er að kalla saman nefnd samkvæmt tillögunni, þriggja manna rannsóknarnefnd, til að fara yfir söguleg gögn og svo á nefndin ekki að fá það verkefni að rannsaka það sem skiptir mestu máli, þ.e. einkavæðingin hin síðari á (Forseti hringir.) bönkunum.