rannsókn á einkavæðingu banka.
Virðulegi forseti. Það er mikið fagnaðarefni að þessi tillaga um rannsókn á einkavæðingu bankanna sé loksins komin til afgreiðslu í þinginu. Það hefur tekið tvö ár og er löngu tímabært, því aldrei hefur verið gerð heildarúttekt á einkavæðingunni með nákvæmri atburðalýsingu og greiningu á ákvarðanatökunni. Það segir átakanlega sögu um stöðu Alþingis á þeim árum að leiðsögn þingsins varðandi markmið, leiðarljós eða aðferðafræði við einkavæðinguna var nákvæmlega engin og rúmaðist í einni stuttri setningu sem hljóðaði svo, með leyfi forseta:
„Heimilt er að selja hlutafé ríkissjóðs í Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf.“
Virðulegi forseti. Með samþykkt tillögunnar hillir loks undir að við fáum í eitt skipti fyrir öll heildarmynd af því hvernig stóð á því að stóru ríkisbankarnir voru seldir einkaaðilum án nokkurrar kröfu um þekkingu og reynslu þeirra af bankarekstri og án þess að reistar væru varnir gegn því að framferði nokkurra bankamanna gæti rústað hag heimila og fyrirtækja með þeim ósköpum sem við upplifðum á haustmánuðum 2008.