141. löggjafarþing — 31. fundur,  7. nóv. 2012.

rannsókn á einkavæðingu banka.

50. mál
[16:42]
Horfa

Margrét Tryggvadóttir (Hr):

Forseti. Efnislega styð ég þessa tillögu en mér finnst hún vera um ólíkt efni, of ólíkt til að hægt sé að skella henni í sömu rannsókn. Einu sinni notaði ég orðið laumufarþegi um breytingartillögu sem var um annað efni og að vissu leyti finnst mér það eiga við hér.

Ef flutningsmaður ætlar að flytja tillöguna sérstaklega hef ég áhuga á að taka þátt í því. (VigH: Ég þakka fyrir.)