141. löggjafarþing — 31. fundur, 7. nóv. 2012.
rannsókn á einkavæðingu banka.
50. mál
Virðulegi forseti. Nú er verið að greiða atkvæði um að setja á fót rannsóknarnefnd til að rannsaka einkavæðinguna hina fyrri. Stjórnarmeirihlutinn felldi þá tillögu mína að fara jafnhliða af stað með rannsókn á einkavæðingunni hinni síðari, en ég vil vekja athygli forseta og þingmanna á því að hér er verið að fara af stað með rannsókn sem minni hluti þingmanna greiðir atkvæði. 27 þingmenn samþykkja þessa rannsókn en þingmenn eru 63 og reiknið þið nú.