fjáraukalög 2012.
Virðulegi forseti. Þetta mál snýst alls ekki um dagskrárplan þingsins fram að áramótum þó að umræður um fjáraukalög 2012 hafi verið settar á þennan dag. Þetta snýst um að þingmenn fari að lögum, að formaður fjárlaganefndar, hv. þm. Björn Valur Gíslason, fari að lögum og vísi fjáraukalögum 2012 til ríkisendurskoðanda til yfirlestrar eins og kveðið er á um í 1. gr. laga um Ríkisendurskoðun, nr. 86/1997. Ríkisendurskoðun ber að annast og hafa eftirlit með framkvæmd fjárlaga og vera þingnefndum til aðstoðar er varðar fjárhagsmálefni ríkisins.
Hér er verið að brjóta lög að þessu leyti. Formaður fjárlaganefndar fer fram með þeim hætti að hann brýtur bæði lög og þá áratugalöngu hefð þingsins að ríkisendurskoðandi komi að gerð fjáraukalaga.