141. löggjafarþing — 33. fundur,  13. nóv. 2012.

varamenn taka þingsæti.

[13:34]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Borist hefur bréf frá 1. þm. Norðvesturkjördæmis, Ásbirni Óttarssyni, um að hann geti ekki gegnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Birna Lárusdóttir. Borist hefur bréf frá 1. varamanni í kjördæminu, Eyrúnu Ingibjörgu Sigþórsdóttur, þar sem hún segir að hún geti ekki tekið sæti á Alþingi vegna anna.

Kjörbréf Birnu Lárusdóttur hefur verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki tekið áður sæti á Alþingi og ber því að undirrita drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Birna Lárusdóttir, 1. þm. Norðvest., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]