141. löggjafarþing — 34. fundur,  14. nóv. 2012.

stjórn fiskveiða.

206. mál
[17:51]
Horfa

Flm. (Þór Saari) (Hr):

Frú forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða, með síðari breytingum. Flutningsmenn eru sá er hér stendur og hv. þingmenn Birgitta Jónsdóttir og Margrét Tryggvadóttir.

Ég mun fara hér í stuttu máli fyrir frumvarpið og útskýra greinar þess og greinargerð, en að öðru leyti mun ég ekki hafa mjög langt mál.

Í 1. gr. frumvarpsins segir, með leyfi forseta:

Markmið laga þessara er að breyta skipulagi fiskveiðistjórnar og sölu sjávarafla og tryggja með því ríka aðkomu sveitarfélaga að úthlutunum aflaheimilda og eflingu byggðar. Með lögunum er stefnt að því að hvert sveitarfélag á Íslandi fái forræði yfir veiðum á samsvarandi hluta nytjastofna á Íslandsmiðum og nemur samanlagðri aflahlutdeild þeirra fiskiskipa sem skráð voru í viðkomandi sveitarfélagi fyrir gildistöku laga um stjórn fiskveiða, nr. 38/1990. Að auki stefna lögin að fjárhagslegri endurskipulagningu útgerðar á Íslandi í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Loks stefna lögin að eflingu umhverfisvænna handfæraveiða.

Í 2. gr. frumvarpsins segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Á eftir 3. gr. laganna koma fjórar nýjar greinar, 3. gr. a – 3. gr. d, svohljóðandi:

a. (3. gr. a.)

Heimildir til veiða úr nytjastofnum við Ísland eru á forræði íslenskra sveitarfélaga. Þó skulu sveitarfélög hlíta ákvörðun ráðherra samkvæmt 3. gr. Hlutdeild hvers sveitarfélags í heildarafla skal vera hin sama og samanlögð hlutdeild skráðra fiskiskipa í sveitarfélaginu við gildistöku laga um stjórn fiskveiða, nr. 38/1990.“

Frú forseti. Hér er verið að færa aflaheimildir sem úthlutað er úr sameiginlegum stofnum til þess fyrirkomulags sem var áður en framsal var heimilað á sínum tíma með lögum árið 1990 og í þeim hlutföllum sem voru á viðkomandi svæðum á landinu og byggðust á veiðireynslu á sínum tíma þegar kvótakerfinu var fyrst komið á. Þetta teljum við vera mjög mikilvægt ákvæði þar sem hér er um gríðarlega mikla og góða byggðatengingu að ræða og ætti að vera fyllilega í samræmi við áherslur Framsóknarflokksins í þessum málaflokki en hann hefur lagt mikla áherslu að sjávarbyggðir landsins geti haldið áfram að afla fiskjar.

Í b-lið 2. gr. frumvarpsins segir:

Sveitarfélög samkvæmt 3. gr. a skulu selja aflaheimildir til bjóðenda gegn gjaldi á grundvelli uppboða. Uppboð skulu kynnt rækilega með hæfilegum fyrirvara og skal öllum landsmönnum heimil þátttaka. Skulu uppboð haldin með jöfnu millibili tvisvar til tólf sinnum á hverju fiskveiðiári. Ráðherra skal setja nánari reglur um fyrirkomulag uppboða og forsendur fyrir vali boða samkvæmt 1. mgr. með reglugerð.

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skal sveitarfélögum heimilt að selja allt að helmingi aflaheimilda sem þau hafa yfir að ráða hverju sinni með framvirkum samningum um sölu aflaheimilda til allt að fimm ára í senn til einstaklinga eða lögaðila sem hafa gert samninga um fjárfestingar í nýjum fiskiskipum. Verð aflaheimilda í slíkum samningum skal vera hið sama og meðalverð í uppboðum sveitarfélagsins. Slíkir samningar eru óframseljanlegir án sérstaks samþykkis viðkomandi sveitarfélags.

Kjósi kaupandi aflaheimilda ekki að nýta þær að fullu við lok fiskveiðiárs skal sveitarfélögum skylt að afturkalla sölu þeirra í heild eða að hluta gegn endurgreiðslu alls eða hluta kaupverðs. Fjárhæð endurgreidds uppboðsverð skal nema uppboðsverði að viðbættri eða frádreginni þeirri hækkun eða lækkun sem orðið hefur á meðalverði aflaheimilda frá kaupdegi til afturköllunardags.

Selji sveitarfélag aflaheimildir til einstaklinga eða lögaðila sem eiga lögheimili utan þess skulu kaupendur greiða sveitarfélaginu 10% álag á uppboðsverð. Öðrum en sveitarfélögum eða uppboðsmörkuðum á vegum sveitarfélaga er óheimil sala eða framsal aflaheimilda.

Frú forseti. Hér er verið að færa aflaheimildir og úthlutun þeirra inn í það hagkvæmasta fyrirkomulag sem hugsast getur, þ.e. að setja þær á uppboðsmarkað sem allir landsmenn hafa aðgang að. Uppboð hafa sýnt sig leiða ætíð til hagkvæmustu niðurstöðu fyrir seljandann og fyrir kaupandann sem mun náttúrlega aldrei greiða hærra verð en hann ræður við að greiða. Eigandi auðlindarinnar fær hæsta verð sem hægt er að selja hana á og allir ættu að öðru jöfnu að ganga sáttir frá borði.

Hér inni eru ákvæði sem tengjast byggðasjónarmiðum líka þar sem fram kemur að ef aflaheimild er seld úr viðkomandi sveitarfélagi gerist það með ákveðnum kvöðum, þ.e. á hana leggst 10% gjald. Þetta er byggðatengt sjónarmið en það kemur samt ekki í veg fyrir að sú hagræðing sem ná þarf í greininni náist vegna þess að heimildir eru að öðru leyti framseljanlegar.

Í c-lið 2. gr. frumvarpsins segir eftirfarandi:

Við veiðar á afla á grundvelli aflaheimilda samkvæmt 3. gr. a er heimill meðafli úr öðrum tegundum allt að 10% af heildarafla hverrar veiðiferðar. Við löndun meðafla skal kaupandi aflaheimilda greiða viðeigandi sveitarfélagi gjald sem nemi meðaluppboðsverði aflaheimilda sömu tegundar á síðasta þekkta uppboðsdegi aflaheimilda, samanber 3. gr. b.

Frú forseti. Hugmyndin á bak við þennan lið er fyrst og fremst sú að reyna að koma sem mest í veg fyrir brottkast á fiski sem ekki eru heimildir fyrir til að veiða. Í gegnum árin hafa margar sögur farið af því brottkasti sem viðhaft hefur verið á íslenskum fiskiskipum, hvort sem er á frystitogurum, ísfisktogurum eða bátum. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir auðlindina í heild sinni að brottkasti verði hætt og að mönnum verði heimilt að koma með þann afla að landi sem þeir veiða sjálfir og fái þá einfaldlega að landa honum og selja hann á viðeigandi verði en greiði líka fyrir þann afla sem heimild.

Í d-lið 2. gr. frumvarpsins segir svo:

Allur sjávarafli sem veiddur er á grundvelli aflaheimilda sem seldar hafa verið á uppboði sveitarfélags, þó ekki rækja, humar og uppsjávarfiskur, og veiddur er úr stofnum sem að hluta eða öllu leyti halda sig í efnahagslögsögu Íslands, skal seldur á innlendum uppboðsmarkaði sjávarafla er fengið hefur leyfi ráðherra og starfræktur er innan þess sveitarfélags þar sem uppboð aflaheimilda fór fram.

Ákvæði 1. mgr. gildir ekki um einstaklinga og lögaðila sem starfrækja eigin fiskvinnslu og vinna aflann að fullu. Í þeim tilvikum skal uppgjör á aflahlut sjómanna ákvarðast af meðalverði þess uppboðsdags eða síðasta þekkta meðaluppboðsverði uppboðsdags á uppboði samkvæmt 1. mgr.

Heimilt er að selja fullunninn frystan afla utan uppboðs samkvæmt 1. mgr. Til fullunnins frysts afla telst sjávarafli sem hefur verið veiddur og í kjölfarið unninn um borð í frystiskipi, honum pakkað og hann verið flakaður, flattur, sneiddur, roðdreginn, hakkaður eða verkaður á annan hátt og hann frystur að vinnslu lokinni. Þegar aðeins fer fram frysting um borð í frystiskipi á heilum eða hausskornum fiski eða heilfrysting á rækju telst slíkur afli ekki til fullunnins frysts afla í skilningi laga þessara.

Bjóðendur á uppboðsmarkaði samkvæmt 1. mgr., sem vinna keyptan afla utan þess sveitarfélags sem uppboðið fer fram í, skulu greiða því sveitarfélagi 10% álag á uppboðsverð.

Frú forseti. Í 2. gr. er um þýðingarmikinn lið að ræða því að þar segir að allur afli sem veiddur er á Íslandsmiðum fari á innlenda uppboðsmarkaði þar sem hverjum sem er er leyft að bjóða í hann. Eins og fram hefur komið og þekkt er skila uppboðsmarkaðir hagstæðustu niðurstöðu sem hægt er að fá. Hér er líka stigið það mikilvæga skref að skilja milli veiða og vinnslu sem lengi hefur verið kallað eftir. Samtök fiskútflytjenda án útgerðar hafa nefnt að með því að vinna allan afla innan lands skapist um það bil 800 afleidd störf.

Það er mikilvægt að leggja áherslu á að erlendir bjóðendur geti líka boðið í þennan fisk. Hér eru hagkvæmnissjónarmið því ekki fyrir borð borin. Hæsta verð mun fást fyrir aflann hverju sinni og ef erlendir kaupendur hafa áhuga á að kaupa íslenskan fisk verður þeim það heimilt.

Í 3. gr. frumvarpsins segir:

4. gr. laganna orðast svo:

Enginn má stunda veiðar í atvinnuskyni við Ísland nema hafa fengið til þess almennt veiðileyfi. Veiðileyfi í atvinnuskyni fellur niður hafi fiskiskipi ekki verið haldið til fiskveiða í atvinnuskyni í tólf mánuði. Þá fellur veiðileyfi niður ef fiskiskip er tekið af skrá hjá Siglingastofnun Íslands og ef eigendur eða útgerð þess fullnægja ekki skilyrðum síðari málsliðar 5. gr.

Frú forseti. Hér er einfaldlega verið að taka á ákveðnum öryggis- og aðgengissjónarmiðum í fiskveiðum. Þessi grein er í samræmi við gildandi lög um stjórn fiskveiða.

4. gr. hljóðar svo:

Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. a laganna:

a. Í stað 1. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:

Á hverju fiskveiðiári hefur ráðherra til ráðstöfunar 40.000 lestir af óslægðum botnfiski sem nýttar skulu til veiða með handfærum á tímabilinu frá 1. apríl til 30. september samkvæmt sérstökum leyfum Fiskistofu. Í lögum þessum eru slíkar veiðar nefndar strandveiðar og leyfin til þeirra veiða strandveiðileyfi. Afli sem veiðist með strandveiðum reiknast ekki til heildarafla samkvæmt 3. gr.

b. Í stað 3. mgr. koma tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:

Strandveiðar eru háðar sérstöku leyfi Fiskistofu. Fiskistofu er aðeins heimilt að veita fiskiskipi leyfi til strandveiða að fullnægt sé ákvæðum 5. gr. og einungis er heimilt að veita hverri útgerð, einstaklingi eða lögaðila leyfi til strandveiða fyrir eitt fiskiskip. Á gildistíma strandveiðileyfis er fiskiskipi óheimilt að stunda aðrar veiðar í atvinnuskyni en strandveiðar.

Handhafar strandveiðileyfis skulu greiða því sveitarfélagi þar sem þeir landa afla gjald, auðlindagjald, við löndun afla. Gjaldið skal lagt á miðað við hvert kíló landaðs sjávarafla. Fjárhæð gjaldsins skal miðast við meðalkílóverð síðasta þekkta uppboðsdags aflaheimilda í sveitarfélaginu.

c. 4. mgr. orðast svo:

Strandveiðileyfi skulu veitt skráðum fiskiskipum með heimilisfang á svæði samkvæmt 3. mgr. Einungis er heimilt að veita fiskiskipum útgerða, einstaklinga eða lögaðila strandveiðileyfi sé lögheimili þeirra skráð á sama stað og heimilisfang skráðs fiskiskips. Sama fiskiskipi verður aðeins veitt leyfi frá einu landsvæði á hverju veiðitímabili.

d. Orðið „föstudaga“ í 1. tölulið 5. mgr. fellur brott.

e. Í stað tölunnar „14“ í 2. tölulið 5. mgr. kemur: 18.

f. 5. töluliður 5. mgr. fellur brott.

Frú forseti. Hér er um að ræða stórfellda útvíkkun á strandveiðum. Heildarhlutdeildin fer í 40 þús. lestir og tímabilið lengist um einn mánuð í hvorn enda frá því sem nú er, þ.e. hefst 1. apríl og lýkur 30. september. Þetta mun auka mjög aðgengi allra að fiskveiðum og gera mönnum kleift, hvort sem þeir stunda veiðar eingöngu í atvinnuskyni eða í hjáverkum, að sækja sjó frá Íslandi. Lenging veiðitímabilsins og stærð kvótans sem varið er til strandveiðanna mun gera það að verkum að ólympískar veiðiaðferðir leggjast af, það verður enginn svo mikið í spreng að bruna út á sjó fyrstu tvo til þrjá daga hvers mánaðar eða hvers tímabils til að ná sem mestu af fiski vegna þess að það er af nógu að taka. Tímabilið er þar að auki lengt þannig að þetta mun gera mönnum kleift að sækja sjóinn ásamt því að taka sér þau eðlilegu frí sem þarf á þeim tíma.

Í 5. gr. frumvarpsins segir:

Við gildistöku laga þessara skal sérstakur sjóður, kvótaskuldasjóður, taka við réttindum og skyldum skuldara allra krafna á hendur íslenskum útgerðum, einstaklingum og lögaðilum sem sannanlega eru til komnar vegna kaupa eða leigu á aflaheimildum. Frá þeim tíma er sjóðurinn eini skuldari slíkra krafna. Kröfur á hendur kvótaskuldasjóði samkvæmt 1. mgr. bera ekki vexti.

Seljendur aflaheimilda skulu að loknu uppboði og uppgjöri greiða kvótaskuldasjóði gjald að fjárhæð sem nemur 5% söluverðmætis seldra aflaheimilda hvers uppboðs.

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra fer með yfirstjórn kvótaskuldasjóðs og skal hlutast til um að rekstur hans fari fram á eðlilegan og lögmætan hátt. Ráðherra er heimilt að ráða sjóðnum starfsfólk.

Frú forseti. Hér er um að ræða mikilvæga endurskipulagningu á skuldum sjávarútvegsfyrirtækja á Íslandi. Við leggjum þetta til sem sanngirnis- og réttlætismál til að koma til móts við þær útgerðir sem keyptu kvóta í góðri trú um að þær mundu eiga hann til frambúðar. Menn geta sagt sem svo að útgerðarmenn hefðu átt að vita að þeir væru að kaupa köttinn í sekknum þegar þeir keyptu sér kvóta en engu að síður gerðu þeir það í góðri trú og samkvæmt gildandi lögum. Skuldir sem til er stofnað vegna þessara kaupa verða því afskrifaðar og settar í sérstakan kvótaskuldasjóð. Eigendur þessara skulda, þ.e. væntanlega lánastofnanir, munu fá þær endurgreiddar, að vísu án vaxta sökum þess að árum og áratugum saman var ljóst að bönkum og fjármálafyrirtækjum var óheimilt að lána til kvótakaupa en gerðu það engu að síður. Þess vegna teljum við ekki rétt að þau verði áfram verðlaunuð með því að geta tekið vexti af lánunum en höfuðstóllinn verður endurgreiddur að fullu. Þarna kemur inn ákvæði um 5% álag á söluverðmæti til að greiða upp þessar skuldir.

Áður hefur komið fram spurning um hvað þetta gæti tekið langan tíma. Það er einfaldlega eitt af þessum atriðum sem ekki er búið að reikna út og er mjög erfitt að reikna út. Þetta er í sjálfu sér útfærsluatriði og ef menn sjá fram á að þessi kvótaskuldasjóður verði ekki gerður upp fyrr en að 100 árum liðnum er einboðið að hækka hlutfallið, ólíklegt er að það þurfi að lækka.

Í 6. gr. frumvarpsins kemur fram að 8.–15. gr., V. og VI. kafli og ákvæði til bráðabirgða I–VII í núgildandi lögum falli brott.

Í 7. gr. kemur fram að lög þessi öðlist gildi 1. september 2013.

Frú forseti. Vonandi fer þetta frumvarp til umsagnar í atvinnuveganefnd og síðan í þjóðaratkvæðagreiðslu, en hæstv. forsætisráðherra hefur talað um það oftar en einu sinni að breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu ættu að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Vitandi það að væntanlegt er frumvarp frá ríkisstjórninni um þetta sama efni er augljóst að ágætt væri að setja þessi tvö mismunandi mál í þjóðaratkvæðagreiðslu á sama tíma og leyfa þjóðinni að velja hvaða leið verður farin.

Frú forseti. Í greinargerð með frumvarpinu segir eftirfarandi:

Frumvarp þetta var lagt fram á 139. löggjafarþingi og 140. löggjafarþingi og er nú lagt fram að nýju. Markmið þessa frumvarps er að færa úthlutun á aflaheimildum úr sameiginlegum fiskveiðiauðlindum þjóðarinnar til þess horfs sem hún var í áður en framsal aflaheimilda kom til árið 1991, en fram að þeim tíma hafði úthlutunin byggst á veiðireynslu til margra ára og var því bæði sanngjörn og réttlát. Með frumvarpinu er einnig reynt að tryggja að aflaheimildir fari til þeirra byggða sem þeim var upprunalega úthlutað til. Miðað er við að aflahlutdeildin sé nýtt í viðkomandi sveitarfélagi. Þó er sveigjanleiki í nafni hagkvæmni tryggður þar sem aflahlutdeildin er framseljanleg þegar hagkvæmnisrök gefa tilefni til. Með því móti verður réttur íbúa sjávarbyggða á Íslandi til sjósóknar tryggður eins og verið hefur frá örófi alda sem eini raunverulegi grundvöllur tilvistar flestra þeirra.

Niðurstöður framangreindrar tilfærslu á aflaheimildum til sveitarfélaga heimfært á fiskveiðiárið 2010/2011, miðað við upphaflega úthlutaðan kvóta byggt á veiðireynslu, er sýnt sem dæmi í töflu sem er í greinargerðinni. Þar kemur skýrt í ljós hvað kemur í hlut hvers sveitarfélags miðað við breytingu á þessu fyrirkomulagi. Ég mun fara stuttlega yfir það á eftir hvaða áhrif þetta muni hafa á fjárhagsstöðu sveitarfélaganna.

Skýrt er kveðið á um eignarhald þjóðarinnar á fiskstofnunum í kringum landið í fyrstu tveimur greinum laga um stjórn fiskveiða. Þar segir orðrétt í 1. gr., með leyfi forseta:

„Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.“

Og í 2. gr. laganna segir, með leyfir forseta:

„Til nytjastofna samkvæmt lögum þessum teljast sjávardýr, svo og sjávargróður, sem nytjuð eru og kunna að verða nytjuð í íslenskri fiskveiðilandhelgi og sérlög gilda ekki um.

Til fiskveiðilandhelgi Íslands telst hafsvæðið frá fjöruborði að ytri mörkum efnahagslögsögu Íslands eins og hún er skilgreind í lögum nr. 41 1. júní 1979, um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn.“

Frú forseti. Frumvarp þetta tryggir að arður af nytjastofnum á Íslandsmiðum skili sér til réttmæts eiganda þeirra, þ.e. íslensku þjóðarinnar. Upptaka uppboðskerfis við sölu aflaheimilda tryggir hámarksverð fyrir nýtingarrétt auðlindarinnar en þó eingöngu að því marki sem útgerðirnar geta borið. Frumvarpið gerir einnig ráð fyrir að hluta aflaheimilda megi selja framvirkt til allt að fimm ára í senn þannig að þeir sem hyggjast fjárfesta í útgerð geti gert ráð fyrir aðgengi að heimildum til lengri tíma en eins árs. Þá er sveigjanleiki tryggður með því að útgerðir utan viðkomandi sveitarfélaga geta keypt þar aflaheimildir gegn greiðslu með 10% álagi.

Með ákvæði um meðafla er stefnt að því að girða að mestu leyti fyrir brottkast afla. Þó væri æskilegt að settar yrðu skýrar og afdráttarlausar reglur sem alfarið bönnuðu brottkast afla gegn þungum viðurlögum.

Frumvarpið gerir ráð fyrir mikilli beinni atvinnusköpun vegna löndunar alls afla og sölu í gegnum innlenda uppboðsmarkaði í samræmi við ákvæði frumvarps til laga um sölu sjávarafla o.fl. frá 139. löggjafarþingi (50. mál) þar sem segir meðal annars, með leyfi forseta:

„Allur sjávarafli, þó ekki rækja, humar og uppsjávarfiskur, sem veiddur er úr stofnum sem að hluta eða öllu leyti halda sig í efnahagslögsögu Íslands, skal seldur á innlendum uppboðsmarkaði sjávarafla er fengið hefur leyfi Fiskistofu.“

Þessi breyting ein sér mun að öllum líkindum leiða til um 800–1.000 nýrra starfa við fiskverkun með litlum tilkostnaði á mjög skömmum tíma.

Frú forseti. Framsal aflaheimilda hefur leitt til gríðarlegrar byggðaröskunar víða um land og gert að engu eina bjargræði sjávarbyggða, sjósóknina, sem þær hafa notið í aldaraðir. Með því að taka lífsbjörgina af sjávarbyggðunum hefur öll afkoma og eignastaða íbúa á þessum stöðum raskast við atvinnuleysi, brottflutning og eignabruna. Með samþykkt þessa frumvarps mun sú þróun snúast við og fólksflótti af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins stöðvast og koma í veg fyrir þann gríðarlega samfélagslega tilkostnað sem slíkir hreppaflutningar hafa í för með sér.

Aukning á afla til strandveiða, sem hér eftir verða utan tillagna Hafrannsóknastofnunar um heildarafla og standa yfir stærri hluta árs en nú er, mun hafa umtalsverð áhrif á atvinnulíf um allt land. Auðlindagjald og strandveiðar munu einnig skila umtalsverðum tekjum til þeirra sveitarfélaga þar sem aflanum er landað.

Sá skaði sem útgerðir og núverandi handhafar aflaheimilda verða fyrir vegna missis aflaheimilda verður bættur með því að skuldir útgerða sem eru til komnar vegna kaupa á aflaheimildum verða færðar í sérstakan kvótaskuldasjóð. Skýrt er í lögum að aflahlutdeild útgerðar er ekki eign hennar og þær skuldir sem stofnað hefur verið til vegna kaupa á slíkum heimildum eru og hafa alltaf verið áhættulánveiting viðkomandi lánveitanda. Kvótaskuldasjóður verður greiddur niður með 5% gjaldi á allar seldar veiðiheimildir þar til sjóðurinn er að fullu gerður upp. Skuldir kvótaskuldasjóðs bera enga vexti.

Varðandi þá umræðu sem skapast hefur og lýtur að hugsanlegum brotum á eignarréttarákvæði stjórnarskrár skal tekið fram að um langa tíð hefur skýrt verið kveðið á um það í lögum að nytjastofnar á Íslandsmiðum séu sameign þjóðarinnar. Þrátt fyrir að möguleiki sé á þeirri ólíklegu niðurstöðu dómstóla að ríkið yrði skaðabótaskylt vegna innköllunar aflaheimilda eða annars þess sem mundi leiða af frumvarpi þessu þá er engu að síður þess virði að þær breytingar sem hér eru lagðar til komist til framkvæmda. Betra er að þurfa hugsanlega að sæta slíkri niðurstöðu dómstóla en að búa áfram við óbreytt eða lítið breytt fyrirkomulag fiskveiða.

Í framhaldi af þeim breytingum á fiskveiðistjórnarkerfinu sem frumvarp þetta gerir ráð fyrir er brýnt að fram fari víðtæk og ítarleg úttekt á Hafrannsóknastofnun og veiðiráðgjöf hennar með tilliti til aðferðafræðilegra sjónarmiða. Einnig verði kannað hversu vel hefur tekist til með verndun fiskstofna, fiskimiða og lífríkis og uppbyggingu fiskstofna. Í þeirri úttekt er brýnt að fiskveiðar við Ísland verði skoðaðar heildstætt með tilliti til þess skaða sem þær hafa valdið á lífríkinu og lagt mat á hagkvæmni togveiða annars vegar og krókaveiða hins vegar. Slíka úttekt ættu hlutlausir erlendir aðilar að gera í samráði við sjómenn, íslenska fiskifræðinga og vistfræðinga.

Frú forseti. Mig langar að tæpa aðeins á því hvað það þýðir í tekjum fyrir sveitarfélög úti á landi ef uppboðsheimildir verða færðar til sveitarfélaganna og tryggt að arðurinn af uppboðunum verði eftir hjá þeim. Þá er um gríðarlega breytingu á fjárhagsstöðu sveitarfélaga um allt land að ræða. Við gerðum smávægilega úttekt á þessu þar sem við tókum meðalverð af aflaheimildum þann 1. janúar árið 2010 og drógum af því 50% þar sem við gerðum ráð fyrir að ef allar aflaheimildir færu á markað yrði umtalsverð verðlækkun á þeim þannig að í staðinn fyrir að verðleggja þær á 318 kr. þorskígildiskílóið lækkuðum við það um helming, niður í 159 kr. Miðað við þá tölu, sem er ekkert óraunhæf í þessu samhengi, mundi til dæmis sveitarfélagið Akureyri fá hvorki meira né minna en 3,6 milljarða á hverju fiskveiðiári í sinn hlut fyrir þær aflaheimildir sem færðust til sveitarfélagsins, miðað við sömu aflaheimildir. Ísafjarðarbær fengi til umráða 3,2 milljarða. Norðurþing, þar sem er m.a. sveitarfélagið Raufarhöfn sem er í miklum vandræðum, mundi fá til ráðstöfunar um 1,4 milljarða. Reykjanesbær, sem hefur tapað frá sér nánast öllum aflaheimildum sínum, mundi fá um 1,8 milljarða og Vestmannaeyjar mundu fá um 4,6 milljarða í tekjur í sinn hlut frá svona uppboðum miðað við þetta verð og þann kvóta sem þeir hefðu samkvæmt þessum breytingum.

Þessir fjármunir, frú forseti, gjörbreyta merkingu þess „að búa úti á landi“ vegna þess að sveitarfélög með slíkar tekjur geta búið íbúum sínum öruggt og gott umhverfi. Þau geta boðið upp á betri skóla, þjónustu og aðstöðu til afþreyingar sem að mínu viti mundi leiða til þess að þau sveitarfélög sem hafa horft upp á fólksfækkun undanfarna áratugi mundu sjá þá þróun snúast við. Þegar fámenn sveitarfélög hafa skyndilega umtalsverða fjármuni milli handanna og geta boðið upp á góða þjónustu við íbúa mun fólk einfaldlega hugsa sig um og ákveða ef til vill að flytja í minna sveitarfélag þar sem þægilegra er að búa og þjónustan er betri.

Mikilvægt er þó að hafa í huga að arðurinn af þessum uppboðum renni ekki í hítina í Reykjavík, í ríkissjóð, heldur verði eftir á þeim stöðum þaðan sem gert er út. Þessi aðgerð ein og sér mun virka sem kraftaverk á byggð í landinu og atvinnulíf um allt land og gjörbreyta náttúrlega allri umgjörð um fiskveiðar á Íslandi til langs tíma og jafnvel til frambúðar. Við verðum laus við þær deilur sem við höfum staðið í núna í um 30 ár um fiskveiðistjórnarkerfið og jafnræði til sjósóknar verður komið á en það eitt og sér er mjög mikilvægt atriði.

Það er von mín að atvinnuvegnanefnd Alþingis taki þetta frumvarp til alvarlegrar athugunar með það í huga, eins og ég sagði áðan, að það verði sett í þjóðaratkvæðagreiðslu, væntanlega samhliða frumvarpi ríkisstjórnarinnar, en eins og ég sagði áðan hefur hæstv. forsætisráðherra ítrekað sagt að breytingar á fiskveiðistjórnarkerfinu ættu að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Ég ætla ekki að hafa fleiri orð að sinni um þetta mál.