skipulögð glæpastarfsemi og staða lögreglunnar.
Hæstv. forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. málshefjanda fyrir að taka þessa umræðu upp á Alþingi en grundvallarspurning hans var sú hvort ég teldi að lögreglan á Íslandi væri í stakk búin til að takast á við skipulagða glæpastarfsemi. Svar mitt er: Já, hún er það. Að sjálfsögðu ber að hafa fyrirvara á eins og í ýmsu öðru þegar til dæmis er spurt um kosti og galla íslenska heilbrigðiskerfisins til að takast á við þann vanda sem samfélagið á við að stríða í heilsufarslegu tilliti. Hann vísar í skýrslu sem samin var í Noregi eftir voðaatburðina þar á sínum tíma. Ég hef kynnt mér þá skýrslu og þar kemur meðal annars fram að í kjölfarið og eftir að ríkislögreglustjóri hafði farið yfir skýrsluna kom hann með ábendingar um að við þyrftum að efla lögregluna til að takast á við hugsanleg voðaverk af þessu tagi. Hann er þá að horfa til búnaðar og fjölda lögreglumanna sem og æfinga og annars af slíku tagi.
Með öðrum orðum, þótt ég telji að lögreglan sé í stakk búin til að takast á við skipulagða brotastarfsemi má betur gera. Það er í grundvallaratriðum mitt svar.
Það sem við höfum gert á tveggja ára tímabili er að verja 100 millj. kr. sérstaklega til þessa verkefnis, að efla lögregluna í að takast á við skipulagða glæpastarfsemi, brotastarfsemi, og þá er ég að horfa til rannsóknastarfs, skipulagsstarfs og aðgerða. Ég fullyrði að lögreglan hefur haft árangur af sínu starfi. Það hefur einnig komið til að það sem upphaflega var einskorðað við það sem er skilgreint í lögum sem brotastarfsemi hefur verið víkkað út. Við horfum núna til vændis og mansals auk þeirra þátta sem áður voru rannsakaðir. Annað hefur gerst í þróun þessa starfs og byggir á úttektum sem greiningardeild ríkislögreglustjóra hefur gert, lögreglan hefur eflt samstarf lögregluembætta úti á landi. Það er rannsóknarteymi sem hefur þetta verkefni með höndum fyrst og fremst en það er lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, lögreglan á Suðurnesjum og að sjálfsögðu embætti ríkislögreglustjóra. Við erum að víkka þetta verksvið út annars vegar og síðan tryggja að það taki til lögregluembættanna í landinu öllu og þá er horft til þess að hafa samskiptin greiðari og stuðla að þjálfun og öðru slíku.
Ég vil af þessu tilefni sérstaklega vísa til þess að gott samstarf hefur tekist á milli lögreglunnar og framkvæmdarvaldsins, innanríkisráðuneytisins og Alþingis. Þar horfi ég sérstaklega til starfs á vegum allsherjarnefndar Alþingis en hún beitti sér fyrir því að frumkvæði formanns nefndarinnar, hv. þm. Björgvins G. Sigurðssonar, að fyrir þingið var lögð tillaga um stefnumótun á þessu sviði sem síðan var samþykkt og á grundvelli hennar var byggð aukin fjárveiting til þessa málaflokks.
Hv. þingmaður vék að öryggi lögreglunnar. Ég tek undir þær áhyggjur sem hann lét í ljósi hvað það snertir. Okkur ber að sjálfsögðu að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja öryggi þeirra lögreglumanna sem eru að glíma við hættulega glæpamenn og þá horfum við hugsanlega til öryggisbúnaðar við heimili lögreglumanna. Eins og hv. þingmaður vék einnig að þurfum við að horfa til mannaflans innan lögreglunnar og þeirra fjármuna sem er varið til þessarar starfsemi. Ég tek undir með honum að við eigum að sjálfsögðu að líta á lögregluna sem einn af undirstöðuþáttum í okkar velferðarsamfélagi. Við horfum á lögregluna og skilgreinum hana sem mikilvæga innviði í okkar samfélagi sem okkur ber að standa vörð um.