skipulögð glæpastarfsemi og staða lögreglunnar.
Frú forseti. Þetta er þörf umræða og ég þakka hana. Það vakti athygli hér um daginn þegar birtust í fjölmiðlum miklar fyrirsagnir um að hefndaraðgerðir gegn lögreglumönnum væru fyrirhugaðar og því hefði verið farið í rassíu til að handtaka menn. Það sem mér finnst einkennilegt við það mál var að fjöldi manns var handtekinn en ekki haldið í gæsluvarðhaldi. Langflestum þeirra var sleppt sem bendir til þess að annaðhvort var fréttaflutningur af málinu rangur, grunur lögreglunnar rangur eða dómstólar taka ekki nægilega hart á þessum málum. Það þarf að upplýsa hvar hnífurinn stendur í kúnni í því máli.
Af því að hér var minnst á búsáhaldabyltinguna áðan vil ég minna á að mótmælendur tóku sér stöðu á sínum tíma fyrir framan lögregluna og vörðu hana gegn óeirðaseggjum sem köstuðu grjóti í hana. Því skulum við ekki gleyma. Sem betur fer var mjög lítið um ofbeldi á þeim tíma, bæði af hálfu mótmælenda og lögreglu, og lögreglan sýndi aðdáunarverða rósemi í þeim erfiðu aðstæðum. Störf lögreglu eru mjög mikilvæg. Það þarf að fjölga lögreglumönnum og bæta kjör þeirra. Um það held ég að við getum öll verið sammála.
Hvað aðrar aðgerðir varðar, eins og hleranir sem fólk hefur verið að tala um, þá leyfi ég mér að benda á að lögreglan í nágrannalöndum okkar hefur allar þær heimildir sem verið er að leita eftir en samt fáum við stöðugar fregnir af síauknum og meiri glæpum í nágrannalöndunum. Ég spyr því: Hvaða árangur bera þessar hleranir?
Það má banna bófaflokka, ólöglega félagsstarfsemi, samkvæmt stjórnarskrá. Það er skref sem hæstv. ráðherra á að taka í þessu máli, banna þá einfaldlega og uppræta með þeim aðferðum sem til eru. Ég leyfi mér að taka undir það sem hv. þm. Margrét Tryggvadóttir sagði áðan. Í skýrslu sem hún nefndi, Global Commission on Drug Policy, er því lýst yfir í inngangsorðum að svokallað stríð gegn fíkniefnum sé tapað. Þetta er heimur sem þingmenn eru (Forseti hringir.) hræddir við að tala um, en ég geri þá kröfu að þessi mikilvæga skýrsla verði þýdd af innanríkisráðuneytinu og lögð fram af þinginu og hún rædd. (Forseti hringir.) Þetta er atriði sem við þurfum einfaldlega að ræða um á öðrum forsendum en við höfum verið að gera undanfarna áratugi. (Forseti hringir.) Fíkniefnalaust Ísland mun aldrei verða að raunveruleika. Við þurfum að nota mennsku gegn fíkninni en ekki fangelsi.