skipulögð glæpastarfsemi og staða lögreglunnar.
Hæstv. forseti. Ég held að það liggi fyrir á hverju við þurfum að halda. Við þurfum á meira fjármagni að halda á Íslandi almennt.
Spurt er hvort ég geti staðfest að dregið hafi úr útgjöldum til löggæslumála sem nemur 2,8 (Gripið fram í.) milljörðum á tilteknu árabili. Ég get staðfest að svo er. Ég get líka staðfest að hallinn á ríkissjóði árið 2008 nam 216 milljörðum kr. Ég get líka staðfest að árið eftir, 2009, nam hallinn á ríkissjóði 139 milljörðum kr. Ég get líka staðfest að á þessu ári erum við að færa okkur nær núllinu, hallinn verður 20–30 milljarðar. Hvernig hefur þetta gerst? (Gripið fram í.) Þetta hefur gerst með því að hækka skatta og draga úr útgjöldum. Við höfum reynt að finna þarna ásættanlega blöndu. Hefur þetta bitnað á opinberri starfsemi? Að sjálfsögðu. Ætli niðurskurður hjá stofnunum sem heyra undir innanríkisráðuneytið nemi ekki um 20–25%. Auðvitað kemur niðurskurður einhvers staðar niður í öllu kerfinu sem er háð útgjöldum ríkisins, hjá heilsugæslunni, í menntakerfinu og hjá lögreglunni. Þetta þarf ekki að koma nokkrum manni á óvart. Þetta er sá vandi sem íslenskt samfélag hefur átt við að glíma á undanförnum árum. Við vonumst til þess núna, það eru öll teikn á lofti, að sólin fari hækkandi á hinum efnahagslega himni og við getum farið að stíga fram á við gagnvart löggæslunni, heilbrigðisþjónustunni og menntakerfinu. Við bindum vonir við að það sé í kortunum.
Hér er talað um rannsóknarheimildir lögreglunnar. Ég hef lagt fram frumvarp sem skýrir og skerpir þær reglur sem lögreglan vinnur samkvæmt. Eftir því hafa fagmenn innan lögreglunnar kallað. Ég verð við því kalli. En það stendur ekki til og mun ekki gerast á minni vakt svo lengi sem ég fæ nokkru ráðið, þó að ég virði að sjálfsögðu meirihlutavilja Alþingis í þeim efnum, að setja hér á fót leyniþjónustu. (Forseti hringir.) Það stendur ekki til. (Gripið fram í: Heyr, heyr!)
Ég tek undir með þeim þingmönnum sem horfa til þess góða sem íslenska lögreglan hefur fengið áorkað. Vitnað var í tölur um hvernig okkur hefur tekist að kveða niður glæpi (Forseti hringir.) og hvernig við tökumst á við alvarlega vá eins og skipulagða glæpastarfsemi. Menn eiga að horfa til þess sem vel er gert á þessu sviði, ekki drekkja sér í því sem farið hefur úrskeiðis. (Gripið fram í.)