141. löggjafarþing — 35. fundur,  15. nóv. 2012.

fjáraukalög 2012.

153. mál
[14:16]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Kristjáni Þór Júlíussyni fyrir hlý orð í minn garð. Almennt séð eiga þingmenn hv. fjárlaganefndar að hafa aðgang að upplýsingum til þess að geta vegið og metið þær aðgerðir sem stjórnvöld standa í hverju sinni. Öðruvísi geta þeir ekki, eðli málsins samkvæmt, rækt sínar eftirlitsskyldur. Hlutverk Alþingis er jú þríþætt; það er eftirlitsskyldan, fjárveitingar og lagasetning og ég tel að eftirlitsskyldan sé nú kannski helgust af þeim.

Ég hef heyrt hv. þm. Kristján Þór Júlíusson fara fram á þessar upplýsingar oftar en einu sinni í hv. fjárlaganefnd og skil vel hans óskir. Ég hef hins vegar átt erfitt með að skilja hvað hv. þingmaður er að fara fram á nákvæmlega. Nú er það svo að gögn eru með ýmsu móti innan kerfisins og formleg gögn hljóta að vera uppi á borðum en margt af þessu er óformleg gögn, hugmyndir sem hafa verið reifaðar og pólitískar málamiðlanir. Spurningin er hvort hv. þm. Kristján Þór Júlíusson sé að fara fram á slíkt, sem getur varla talist formleg gögn. Ég óska eftir því að hv. þingmaður útskýri nákvæmlega hvað hann er að fara fram á.