141. löggjafarþing — 35. fundur,  15. nóv. 2012.

fjáraukalög 2012.

153. mál
[14:20]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Auðvitað tek ég undir þau tilmæli hv. þm. Kristjáns Þórs Júlíussonar að formleg gögn úr stjórnsýslunni séu uppi á borðum þegar kemur að aðhaldi hv. fjárlaganefndar. Það sem ég sagði hér áðan í minni tölu var að það hlýtur að vera erfiðleikum bundið fyrir stjórnsýsluna að afhenda gögn sem eru óformleg, trúnaðarskjöl sem varða hugmyndir (Gripið fram í: Engin trúnaðarskjöl.) ríkisstjórnar á hverjum tíma og pólitískar málamiðlanir. (Gripið fram í: Opinber gögn.) Opinber gögn eiga að vera uppi á borðum og hv. fjárlaganefnd á að geta haft aðgang að þeim til að vega og meta þær tillögur sem uppi eru hverju sinni og ég trúi ekki öðru en að fjárlaganefnd sé í fullum færum til þess að verða sér úti um þessi gögn.

Ýmist með því að vitna í 51. gr. þingskapanna sem hv. þingmaður gat um hér áðan og er mjög skýr eða með því að kalla til sín gesti á fundi nefndarinnar, sem við gerum iðulega í hv. fjárlaganefnd, og kalla fram svör frá þeim eða óska eftir minnisblöðum sem varða spurningar hv. nefndarmanna í hv. fjárlaganefnd. Þannig að ég tel að félagar í hv. fjárlaganefnd séu í fullum færum til þess að ná í þessar upplýsingar. Formleg gögn eiga að vera uppi á borðum og ég tel að ef óskin snýr einvörðungu að þeim gögnum þá eigi að vera hægt að fá þau fram í krafti upplýsingalaga.