141. löggjafarþing — 35. fundur,  15. nóv. 2012.

niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.

264. mál
[14:55]
Horfa

Flm. (Einar K. Guðfinnsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar, nr. 78/2002, með síðari breytingum.

Tildrög þessa máls eru þau að mikil umræða hefur verið um lækkun húshitunarkostnaðar á þeim svæðum þar sem hann hefur verið hæstur. Ég vil í þessu sambandi vekja athygli á því að við erum að ræða um svæði þar sem búa kannski um 10% þjóðarinnar, rúmlega 30 þús. manns. Um 30 þús. manns, 10% þjóðarinnar, búa við sligandi húshitunarkostnað sem veldur miklum búsifjum í rekstri heimila þeirra. Þetta þýðir að fólk sem býr við þennan kostnað hefur að öðru jöfnu lakari lífskjör en þeir sem búa við lægri húshitunarkostnað.

Þessi mál hafa oft verið rædd og við vitum að í gegnum tíðina hefur stundum gengið betur og stundum verr þegar reynt hefur verið að lækka þennan húshitunarkostnað. Við höfum gert það fyrst og fremst með því að hvetja fólk til að fara yfir í aðra orkugjafa og þar hefur hitaveituvæðing landsins auðvitað spilað stærstu rulluna. Þar sem það hefur ekki verið hægt höfum við staðið fyrir niðurgreiðslum á húshitunarkostnaði í gegnum árin. Í því höfum við stundum náð ágætum árangri og stundum miður eins og ég nefndi.

Í þessu sambandi vil ég vekja athygli á því að ef við lítum á tölurnar í sögulegu samhengi og skoðum þær upphæðir sem við verjum til niðurgreiðslu á húshitunarkostnaði frá árinu 2007 voru þessar niðurgreiðslur á árinu 2007 tæpir 1,6 milljarðar kr., tæpir 1,8 milljarðar kr. á árinu 2008, en verða samkvæmt frumvarpi til fjárlaga 1,2 milljarðar kr. Niðurgreiðslur til húshitunarkostnaðar hafa því að raungildi lækkað frá árinu 2008 um 500 millj. kr., um hálfan milljarð. Við getum sagt sem svo að þeir 30 þús. einstaklingar, sem eru kannski 10 þús. heimili hið mesta, taka á sig um 530 millj. kr. aukagjald vegna þess að niðurgreiðslurnar hafa lækkað að raungildi sem þessu nemur. Við erum að tala um að niðurgreiðslurnar hafa lækkað um 30% eða þar um bil frá árinu 2008. Við vitum auðvitað að ríkissjóður hefur ekki úr sömu tekjum að spila og áður en það er hins vegar alveg ljóst að niðurgreiðslurnar hafa tekið á sig hlutfallslega meiri lækkun en sem svarar lækkun á ýmsum framlögum ríkisins í gegnum tíðina og mun meiri lækkun en sem svarar t.d. heildarútgjaldalækkun ríkisins á þessum tíma. Við verðum einfaldlega að horfa framan í þessa staðreynd.

Síðan hefur það gerst að almennt hefur verðlag hækkað og raforkuverð fylgt því og til viðbótar hefur hæstv. ríkisstjórn lagt sérstaka skatta á raforkuframleiðsluna í landinu. Þegar þetta er allt saman dregið saman blasir við sú mynd sem við þekkjum að húshitunarkostnaðurinn á þessum svæðum hefur rokið upp úr öllu valdi. Þess vegna er ekki skrýtið að á síðustu árum hefur komið fram miklu harðara ákall frá þessum byggðum um að hlutur þeirra verði réttur. Ég vek athygli á því að þessi heimili þar sem búa 30 þús. manns hafa tekið á sig aukalega, til viðbótar við allt annað, 530 millj. kr. byrði með lækkandi niðurgreiðslu.

Ég hef oft hugleitt hvernig við getum komið þessu í fastari skorður. Á sínum tíma, árið 2009 eða 2010, lagði ég fram þingsályktunartillögu og fékk til liðs við mig flutningsmenn, þingmenn úr flestum stjórnmálaflokkum. Við stóðum sameiginlega að því að leggja fram þingsályktunartillögu um að ríkisstjórninni væri falið að skipa nefnd til að skipa þessum málum til einhverrar framtíðar. Stundum eru örlög manna dálítið sérkennileg því að svo vildi til að nokkrum vikum eftir að ég hafði lagt tillöguna fram lagði ríkisstjórnin leið sína til Ísafjarðar og hélt þar sérstakan fund. Afrakstur hans var meðal annars skipun nefndar, algerlega í sama anda og þingsályktunartillaga mín hljóðaði um, sem færi ofan í þessi mál og mótaði stefnu til framtíðar þannig að menn vissu að hverju þeir gengju og sveiflur í húshitunarkostnaði yrðu úr sögunni.

Þessi nefnd skilaði af sér skýrslu um síðustu áramót. Ég kallaði eftir því hjá hæstv. iðnaðarráðherra á þeim tíma hvort þess væri ekki að vænta að tillögur nefndarinnar litu dagsins ljós í frumvarpsformi frá hæstv. ríkisstjórn. Því var heitið að það yrði gert á þessu hausti. Örlítil agnarögn úr þessum tillögum rataði inn í þingið í formi stjórnarfrumvarps á vordögum. Við í atvinnuveganefnd gerðum á því frumvarpi breytingu sem máli skipti. Hún felur í sér að niðurgreiðslur til þeirra sem hafa tekið upp hitaveitur eru framlengdar í tólf ár þannig að menn geta nýtt þær til að lækka stofnkostnaðinn við byggingu þessara hitaveitna. Það mun hafa heilmikið í för með sér því að hitaveitur sem fram undir þetta hafa verið taldar óhagkvæmar verða hagkvæmar. Það má því má reikna með að þeim muni fækka enn þá sem búa við þennan mikla húshitunarkostnað.

Sú nefnd sem hæstv. ríkisstjórn skipaði skilaði áliti um síðustu áramót eins og ég nefndi og ég hafði vænst þess að sjá í haust frumvarp frá hæstv. ríkisstjórn sem byggði á þeim tillögum í samræmi við þau fyrirheit sem gefin voru á síðasta vori. Þess vegna voru það ósegjanleg vonbrigði þegar ég sá í málaskrá hæstv. ríkisstjórnar sem lögð var fram í upphafi þings að slíkt mál var ekki á dagskránni. Þess vegna ákvað ég að athuga hvort ekki væri hægt að skapa þverpólitíska samstöðu um að leggja fram beinharðar hugmyndir um hvernig hægt væri að lækka húshitunarkostnaðinn á grundvelli þeirra tillagna sem þessi stjórnskipaða nefnd hafði lagt fram. Það tókst mjög vel og hér eru mættir til leiks 14 hv. þingmenn úr fjórum stjórnmálaflokkum sem leggja það til að farið verði nákvæmlega eftir þeim tillögum sem nefndin kom fram með um lækkun húshitunarkostnaðar. Þessar tillögur eru í skemmstu máli þessar:

1. Lagt er til að grundvallarbreyting verði gerð á niðurgreiðslukerfinu þannig að flutningur og dreifing á raforku til hitunar íbúðarhúsnæðis verði niðurgreidd að fullu. Þannig verði kerfið sjálfvirkt þar sem öllum breytingum á verði á raforkudreifingu yrði mætt með sjálfvirkum hætti án þess að sérstök ákvörðun þurfi að liggja þar að baki.

2. Gerð er tillaga um að breyta fjármögnun á niðurgreiðslum og í stað þess að þær komi beinlínis úr ríkissjóði eins og hingað til hefur verið, með þeim áhrifum sem ég hef nefnt, er tillaga hópsins sem við tökum undir í þessu frumvarpi að jöfnunargjald verði sett á hverja framleidda kílóvattstund sem nemi þeim kostnaði sem nauðsynlegur er á hverjum tíma til að niðurgreiða að fullu flutning og dreifingu raforku til upphitunar íbúðarhúsnæðis. Gert er ráð fyrir að 10 aura þurfi á hverja kílóvattstund sem seld er af orku til að standa undir þessu. Það er allt og sumt.

Síðan hefur hópurinn lagt aðrar tillögur fram sem er í sjálfu sér ekki ástæða til að fara mörgum orðum um. Sumar hafa eins og ég nefndi áðan þegar verið framkvæmdar og aðrar þyrftu að koma til framkvæmda ef þetta frumvarp sem hér um ræðir yrði samþykkt.

Ég ætla, virðulegi forseti, í sjálfu sér ekki að hafa fleiri orð um þetta. Við höfum rætt þetta mál mjög oft í þinginu og ég hygg að um það sé býsna mikil samstaða meðal þingmanna. Það er mikið ákall, ekki bara frá íbúum þessara svæða sem ég gerði að umtalsefni heldur líka frá Alþingi, um að við reynum að skipa þessum málum til frambúðar. Það sýnir þingsályktunartillagan sem ég nefndi áðan sem við stóðum að mjög mörg úr öllum flokkum og það sýnir að mínu mati líka sá hópur flutningsmanna sem stendur að þessu frumvarpi. Þetta hefur einnig margoft komið fram í umræðum í þinginu.

Að öðru leyti ætla ég ekki að fjölyrða um þetta. Ég tel að með samþykkt þessa frumvarps væri stigið mikilvægt skref sem skipti máli. Það mundi auðvitað ekki ná utan um allan vandann en yrði sannarlega til þess að draga úr sárasta sviðanum og koma til móts við þau sjónarmið sem höfð hafa verið uppi. Sömuleiðis er það algjörlega í samræmi við tillögur þverpólitískrar nefndar sem ríkisstjórnin skipaði með aðild þeirra sem búa á hinum svokölluðu köldu svæðum. Ég trúi því að um þessar hugmyndir ætti að geta náðst bærileg samstaða á Alþingi.