niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.
Virðulegi forseti. Ég er orðinn gamall sem á grönum má sjá. Fyrir mörgum árum þegar verið var að búa til núverandi kjördæmaskipan var sett niður nefnd sem átti meðal annars að fjalla um hinn byggðalega vinkil í ljósi þess að verið var að minnka vægi atkvæða, fækka kjördæmum og stækka kjördæmi.
Við skoðuðum ýmsa þætti og eitt af því sem við veltum mjög fyrir okkur var einmitt sú skattalega leið sem menn vissu til að farin hafði verið í Noregi. Mér fannst þetta á þeim tíma mjög áhugavert. Það sem þá var reitt fram fyrir okkur af upplýsingum var að þessari aðferð væri beitt í mjög afmörkuðum mæli í Noregi á mjög afmörkuðum svæðum.
Sannleikurinn var sá að fyrir nefndina komu ýmsir sérfræðingar, m.a. skattasérfræðingar sem fundu þessu máli allt til foráttu, þannig að það varð engin samstaða í nefndinni um að leggja þetta til. Það sem varð hins vegar samstaða um og við fórum mjög vel í gegnum hvort það gæti gengið upp praktískt var hugmynd um einhvers konar afslátt til menntaðs fólks sem settist að úti á landsbyggðinni. Ég man eftir því að Lánasjóður íslenskra námsmanna skoðaði þetta mjög rækilega fyrir okkur. Þeir sögðu að það væri tiltölulega einfalt praktískt að gera þetta, menn drægju bara upp byggðakort sem væri viðurkennt af ESA og Byggðastofnun hefur lagt slíkt fram. Hugmyndafræðin á bak við þetta var sú að það væru allt of fáir menntaðir einstaklingar víða úti á landsbyggðinni, eins og við sáum í nýrri skýrslu Byggðastofnunar, og þetta gæti virkað sem hvati til að draga að menntað fólk út á landsbyggðina sem væri auðvitað jákvætt í sjálfu sér. En því miður, þrátt fyrir að nefndin hafi náð um þetta þverpólitískri samstöðu, náði þetta mál aldrei neinu flugi. Ég hefði talið ástæðu til að byrja kannski á því að endurvekja þessa hugmynd úr því að hún var komin þó þetta langt. Ég tek eftir því að menn kalla mjög eftir því að norska leiðin verði skoðuð og ég teldi að það væri verðugt verkefni, t.d. fyrir Byggðastofnun, að fara ofan í það hvernig þetta er gert nákvæmlega í Noregi og hvort það gæti átt við á Íslandi.