niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.
Virðulegi forseti. Við ræðum frumvarp til laga um breytingu á lögum um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, nr. 78/2002, með síðari breytingum (útreikningar fjárhæða, fjármögnun niðurgreiðslna).
Hv. þm. Einar K. Guðfinnsson er 1. flutningsmaður að frumvarpinu. Ég er einn af flutningsmönnum þess en þeir eru alls fjórtán talsins. Mér sýnist svona í fljótu bragði að fulltrúar allra flokka sem sæti eiga á Alþingi séu meðal flutningsmanna plús einn hv. þingmaður sem telst vera utan flokka. Ég hlustaði á það áðan hver tildrögin væru að frumvarpinu hjá hv. 1. flutningsmanni. Upphafið má rekja til fundar ríkisstjórnarinnar sem haldinn var á Ísafirði 5. apríl 2011 þar sem samþykkt var að unnið yrði að því með Samtökum sveitarfélaga á köldum svæðum að leita leiða til að lækka og jafna húshitunarkostnað. Í kjölfarið var skipaður starfshópur sem fékk ákveðin hlutverk í skipunarbréfi iðnaðarráðuneytisins. Í þeim hópi voru fulltrúar frá iðnaðarráðuneyti, fjármálaráðuneyti, Samtökum sveitarfélaga, Rarik, og Orkubúi Vestfjarða. Fulltrúi iðnaðarráðuneytisins var formaður starfshópsins. Sá starfshópur skilaði af sér skýrslu sem við sem sitjum í atvinnuveganefnd fengum kynningu á í vor, ef ég man rétt, frekar en í fyrra.
Skipunarbréf iðnaðarráðuneytisins var svohljóðandi:
Yfirfara lög nr. 78/2002, um niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar, og koma með tillögur til úrbóta varðandi framkvæmd laganna.
Setja fram tillögur um framkvæmd og fjármögnun niðurgreiðslna til húshitunar.
Gera tillögur um viðmið fyrir húshitunarkostnað.
Yfirfara þær aðgerðir sem nú er beitt varðandi orkusparnað á köldum svæðum og koma fram með tillögur um frekari aðgerðir á því sviði.
Starfshópurinn skilaði áliti sínu í lok desember síðastliðnum og í frumvarpinu eru raktar í þremur liðum þær tillögur sem þar voru lagðar fram. Ég hygg að búið sé að fara yfir þær og ætla ekki að nefna þær.
Virðulegi forseti. Þar að auki vil ég nefna til áréttingar við samþykkt ríkisstjórnarinnar frá fundinum á Ísafirði 5. apríl 2011 að þetta er eitt af megininntökum í byggðaáætlun sem var líka unnin í atvinnuveganefnd, sem þá hét iðnaðarnefnd, og var samþykkt samhljóða á Alþingi. Þar var fjallað um þann mismun sem er á húshitunarkostnaði á hinum köldu svæðum, þar sem 10% íbúar landsins búa, miðað við önnur svæði. Þetta hefur því líka stoð í byggðaáætlun og er eitt af merkilegustu og mikilvægustu atriðunum sem við fjöllum um til jöfnunar lífskjara í landinu.
Virðulegi forseti. Það er nýbúið að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem spurt var um hvort atkvæði landsmanna eigi að vega jafnt sama hvar á landinu þeir búa — ég hefði sagt já við því, þegar búið væri og um leið og annað væri þá jafnað í leiðinni. Það er nefnilega ótrúlega auðvelt að jafna þessa þætti í gegnum skattkerfið á Íslandi vegna þess að landið er ekki stærra en það er, með 320 þús. íbúa. Með öðrum orðum, það er algjörlega óásættanlegt að 10% íbúa landsins skuli búa við a.m.k. 100% hærri upphitunarkostnað en er á höfuðborgarsvæðinu. Það er hægt að jafna í gegnum skattkerfið eða í gegnum þær tillögur sem settar eru hér fram.
Virðulegi forseti. Ekki alls fyrir löngu ræddum við um nokkur fleiri atriði sem varða húshitun, þar á meðal frumvarp sem komið er til efnahags- og viðskiptanefndar um niðurfellingu á virðisaukaskatti á kaupum á varmadælum. Ég gerði það að umtalsefni þegar það frumvarp var rætt. Eftir þá umræðu fór ég austur í Neskaupstað og sá þetta þar með eigin augum hjá tveimur aðilum sem hafa af miklum myndarskap, framsýni og frumkvæði sett upp varmadælur á heimilum sínum. Það er annars vegar varmadæla, svokölluð loft í loft sem sparar tæplega 50% í hitunarkostnaði þess húss. Hins vegar er til önnur gerð af varmadælu sem gengur undir nafninu íspinninn og ágætur maður þar sem heitir Jeff Clemmensen setti upp. Ánægjulegt var að koma þangað um daginn og fá að skoða þær og sjá hvað verið er að gera þar.
Stofnkostnaðurinn við loft í loft varmadælu var ekki hár en hann var hærri við hina sem sett var upp. Það er einmitt með svoleiðis aðgerðum eins og þar voru boðaðar sem koma verulega til móts við húshitunarkostnað almennings í landinu sem býr við háan orkukostnað. Hvers vegna nefni ég þetta? Vegna þess að ef við lækkum og fellum niður virðisaukaskattinn og aðflutningsgjöld, tolla og vörugjöld af varmadælum þá mun fólk setja þær upp. Það verður hagkvæmara að setja þær upp, fólk mun spara peninga og jafnframt mundu niðurgreiðslur lækka. Það er bara þannig, virðulegur forseti, að meðan kostnaðurinn er svona hár eins og raun ber vitni er lítið sem ekkert af þessu gert í landinu og þá fær ríkissjóður engar tekjur. Ef farið yrði í aðgerðir mundi það verða fólki í hag, ríkissjóður fengi ekki tekjur, en íbúarnir sem mundu gera þetta nytu hagnaðarins af því plús að niðurgreiðslur mundu lækka hvað það varðar.
Virðulegi forseti. Af því ég nefndi heimsókn mína í Neskaupstað í þessu sambandi og tók dæmi um varmadælu þá má ég til með að segja líka sögu af íbúa í Neskaupstað sem var vanur að borga sína háu húshitunarreikninga. Hann þurfti að bregða búi og flutti suður í ekki mjög stóra blokk og fór í stjórn húsfélagsins. Það lenti á honum að taka við reikningunum og borga þá. Það var svoleiðis að hann fékk orkureikninginn sem var ekki mjög hár, tók hann og borgaði auðvitað. Það gerði hann mánuð eftir mánuð. Svo var haldinn aðalfundur húsfélagsins og þá kom í ljós að húsfélagið hafði ekki borgað neina rafmagnsreikninga. Hvað var það sem gerðist? Jú, virðulegi forseti, það sem gerðist var að þessi aðili leit á reikninginn sem sinn eigin reikning, fyrir sína íbúð og borgaði hann en það var þá óvart fyrir allt húsfélagið. Þetta er skemmtileg saga og þá sögu má líka lesa í töflum í frumvarpinu og skýrslu nefndarinnar, vegna þess að borinn er saman upphitunarkostnaður í fjölbýli, 100 fermetra, og raðhúsi, 140 fermetra, og einbýli, 180 fermetra, og þá sjáum við þann mikla mun sem er á upphitunarkostnaði. Enda var það á þeim stað þar sem ég hitti fólk sem borgaði fyrir 120 fermetra hús eða svo um 240–250 þús. kr., hér væri það hálfvirði miðað við sambærilegt húsnæði á höfuðborgarsvæðinu, enda kemur það fram hérna.
Virðulegi forseti. Ég kem fyrst og fremst til að lýsa yfir stuðningi við það frumvarp sem lagt er fram enda er ég einn af flutningsmönnum þess. Það er sett fram til að hreyfa við þessu máli. Það er auðvitað svo að söknuður er í því að þetta skuli ekki koma fram sem tillaga stjórnvalda. En allt í lagi, úr því að það kemur ekki þá er það bara okkar þingmanna að flytja málið og upphefja þá umræðu sem hér er. Koma málinu til nefndar, til umsagnar, fá umsagnir, fá gesti og fara í gegnum þetta lið fyrir lið.
Virðulegi forseti. Það er einfaldlega þannig að nú, árið 2012, starfar Alþingi allt öðruvísi en það gerði þegar ég kom fyrst á þing árið 1999. Sjálfstæði þingmanna er miklu meira en þá var. Þingmenn eiga að leyfa sér að flytja svona frumvarp eins og hér er gert án þess að vera hræddir við að það skuli ekki vera flutt af ríkisstjórn. Mér væri alveg sama hver ríkisstjórnin væri, ég hefði mína sömu skoðun.
Við skulum þó ekki gleyma því sem vel er gert. Það eru hvorki meira né minna en 1.172 millj. kr. sem veittar eru á fjárlögum til niðurgreiðslu húshitunar í landinu. Það eru miklir peningar, 1.172 millj. kr. Þessi tala hefur hins vegar verið mjög lengi, sérstaklega frá hruni þar sem erfiðleikar hafa verið miklir í ríkisfjármálum eins og rætt hefur verið um og mikill niðurskurður og skattahækkanir. Þetta hefur því miður þurft að láta undan og hefur ekki haldið í við verðbólgu eða verðlagshækkanir. Það kemur hins vegar fram í reikningi þess hóps sem vann skýrsluna að til að jafna þetta hjá þeim 10% íbúa sem búa við þetta háa orkuverð þá vanti 500 millj. kr. upp á það árið 2011. Og eins og sagt er í skýrslunni að miðað við núverandi raforkuframleiðslu á Íslandi, 17 teravattstundir, mundi jöfnunargjald sem nema mundi 10 aurum duga fyrir heildarfjármögnun niðurgreiðslna. Og þar með talið, virðulegi forseti, hjá stórkaupendum, stóriðjunni, sem kaupir um 80–85% af allri raforku á landinu.
Við skulum líka hafa í huga að þessi upphæð mun lækka með ýmsum aðgerðum sem hér eru boðaðar og meðal annars þeirri hugmynd sem ég ræddi um áðan að ef notkun varmadæla eykst mundi sú tala lækka á komandi árum. Hún mundi líka lækka ef fleiri orkukaupendur kæmu til landsins til að kaupa eitthvað af þeirri orku sem rennur til sjávar í dag. Ég hef heyrt þá tölu að í gegnum vélasamstæður orkufyrirtækja í dag renni vatn, sem ekki er notað, sem gæti gefið okkur 5–6 milljarða kr. á ári ef kaupandi væri að því. Og þá sjáum við hvað það mundi aukast og þá mundi þessi upphæð lækka sem því nemur.
Virðulegi forseti. Ég fagna því frumkvæði sem hér er sýnt af þeim 14 þingmönnum sem frumvarpið flytja. Ég fagna umræðunni sem nú er og ég fagna því að það skuli fara til nefndar, fara til umsagnar og gestir komi til að fara yfir málið vegna þess að verið er að hreyfa einu brýnasta máli sem varðar jöfnun lífskjara í landinu.
Virðulegi forseti. Það er með grunnþarfirnar, það er ólíðandi að það sé svo miklu, miklu dýrara hjá 10% íbúa landsins að hita húsin miðað við það sem lægst er. Við getum síðan tekið ýmislegt annað. Það er til dæmis gaman að segja frá því, virðulegi forseti, að nú á þessum krepputímum hefur í fyrsta skipti í sögunni verið búinn til flutningsjöfnunarsjóður. Hann er kominn til núna fyrir tilstilli núverandi ríkisstjórnar. Það var samþykkt á Alþingi og voru veittar í það ef ég man rétt 200 millj. kr. Vafalaust upphæð sem þyrfti að vera hærri, að sjálfsögðu, en þarna er kominn þessi vísir og það hefur tekist í því kreppuástandi sem hefur verið í landinu, með ríkisfjármálin eins og þau eru. En það tókst þó. Þetta er einn af þeim þáttum í viðbót, fyrir utan niðurgreiðslur til húshitunar, flutningsjöfnun o.fl., sem við getum nefnt.
Virðulegi forseti. Ég get endað ræðu mína á eftirfarandi: Man fólk ekki þegar miklu dýrara var að hringja frá Siglufirði til Reykjavíkur en frá Reykjavík til Siglufjarðar? Það voru tvær ólíkar gjaldskrár. Síðan var þetta tekið og steypt saman í eina gjaldskrá, núna skiptir ekki máli hvar menn sitja þegar þeir hefja símtalið. Það var jöfnunaraðgerð en ekki er mjög langt síðan þetta var.
Sú jöfnunaraðgerð sem boðuð er í raun og veru í gegnum skattkerfið, í gegnum gjaldskrár, er leið sem ég sem jafnaðarmaður er til í að fara og mér líkar vel við eins og hún er sett fram. Því fagna ég frumvarpinu og vona að það fái brautargengi í gegnum nefndir Alþingis.