141. löggjafarþing — 36. fundur,  19. nóv. 2012.

skýrsla um stöðu lögreglunnar.

[15:34]
Horfa

innanríkisráðherra (Ögmundur Jónasson) (Vg):

Hæstv. forseti. Við höfum margoft tekið málefni löggæslunnar til umfjöllunar. Við gerum það núna og höfum gert það í tengslum við fjárlögin. Það er alveg sjálfsagt að taka sérstaka umræðu um stöðu löggæslunnar í landinu og ég skorast alls ekki undan því ef slíkar óskir berast.