141. löggjafarþing — 36. fundur,  19. nóv. 2012.

öryggi greiðslufyrirmæla í greiðslukerfum.

92. mál
[15:52]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson skrifuðum undir nefndarálitið með fyrirvara. Hann snýr að þrennu. Í fyrsta lagi að kerfisstjóra. Við vorum ekki búnir að fá útskýrt hvað fælist í orðinu kerfisstjóri og hvar ábyrgð hans lægi, en það fengust svör við því frá ráðuneytinu.

Síðan tókum við fram að skilgreiningin á greiðsludegi væri í rauninni ekki dagur og ekki tímabil heldur atburðir sem gerast í einni ákveðinni lotu. Það er sem sagt hvorki tími né dagur.

Síðan vorum við með athugasemd við það að í frumvarpinu stendur „geiðslufyrirmæli“ en í lögunum stendur greiðslufyrirmæli. Það er prentvilla í frumvarpinu og hana þarf að leiðrétta áður en þetta verður samþykkt sem lög.

Að öðru leyti vorum við ekki með fyrirvara og samþykkjum þessa tillögu.