141. löggjafarþing — 36. fundur,  19. nóv. 2012.

Farsýslan, stjórnsýslustofnun samgöngumála.

133. mál
[15:58]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F):

Virðulegi forseti. Við framsóknarmenn teljum að ekki sé búið að færa nógu góð og gild rök fyrir þessari sameiningu. Við sjáum ekki fram á þann sparnað sem á að vera þarna. Við höfum hlustað á athugasemdir starfsmanna þeirra stofnana sem á að færa þarna saman og því munum við greiða atkvæði á móti þeim tillögum sem hér eru lagðar fram um sameiningu þessara stofnana.