141. löggjafarþing — 38. fundur,  20. nóv. 2012.

stjórnarskipunarlög.

415. mál
[16:36]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í skoðanakönnun á Bylgjunni í síðustu viku var spurt hversu margir hefðu lesið stjórnarskrána. Um 13% töldu sig hafa gert það, um 80% höfðu hvorki lesið hana að hluta né að nokkru leyti. Nú er það lítil skoðanakönnun miðað við kosninguna og ég ætla ekki að gera lítið úr því.

Ég ætla aðeins að koma inn á vinnulagið. Við höfum kallað eftir efnislegri umræðu í þeim umræðum sem hér hafa verið og það er gleðilegt að við séum farin að ræða málið efnislega. Ég vona að stjórnarliðar útskýri sérstaklega ákveðna þætti og rökstyðji, t.d. kaflann um kosningafyrirkomulagið sem ég tel verulega ábótavant. Ég bíð eftir því að stjórnarliðar úr meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar komi hingað upp og útskýri það.

Ég vil að lokum spyrja hvort það sem hv. þingmaður kynnti sem vinnulag, að vísa málinu til nefnda, sé vísir að því sem við höfum kallað eftir, (Forseti hringir.) þ.e. að reyna að breikka samstöðuna í þessu máli (Forseti hringir.) og menn muni að lokum koma sér niður á þær breytingar (Forseti hringir.) sem stór meiri hluti getur staðið á bak við.