141. löggjafarþing — 39. fundur,  21. nóv. 2012.

svar við fyrirspurn.

[15:33]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F):

Frú forseti. Þann 27. september lagði ég fram fyrirspurn til hæstv. utanríkisráðherra um björgunarpakka til varnar evrunni. Nú er um mánuður síðan hæstv. utanríkisráðherra hefði átt að vera búinn að skila svari við þeirri fyrirspurn hingað á Alþingi. Mig langaði, sér í lagi þar sem frú forseti las upp í upphafi þingfundar tafir á svörum við öðrum fyrirspurnum sem voru bornar fram mun seinna, að beina því til hæstv. forseta hvort hún geti beitt sér fyrir því að hæstv. utanríkisráðherra gefi okkur örlítinn tíma og svari þessari fyrirspurn.