141. löggjafarþing — 39. fundur,  21. nóv. 2012.

stjórnarskipunarlög.

415. mál
[16:59]
Horfa

Þór Saari (Hr) (andsvar):

Herra forseti. Ég skal leitast við að svara spurningum hv. þm. Péturs H. Blöndals sem eru málefnalegar og góðar og ég þakka fyrir þær.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hafði að sjálfsögðu heimild til þess að leggja fram þetta frumvarp, um það er ekki deilt. Það er hugsanlegt, eins og menn hafa sagt, og mín skoðun er sú að það hafi verið gerðar efnislegar breytingar á einhverjum greinum þess og því vænti ég að ef það verður staðfest, ef mín skoðun verður staðfest, muni þær ganga til baka. Ég hef ekkert fyrir mér í því annað en að ég hef rætt við menn og þeir, og ég sjálfur, líta þannig á að þarna sé líklega um efnisbreytingar að ræða.

Hvað varðar forsetaembættið tel ég að þótt forsetaembættið beri kannski keim af svolitlu prjáli og óþarfa þurfum við engu að síður að hafa þjóðhöfðingja. Hann ætti að vera sem minnst umdeildur ef hægt er og ég er fylgjandi því að það verði áfram haldið í forsetaembættið og forseta sem er kjörinn beinni kosningu af þjóðinni með reglulegu millibili en ekki að Alþingi velti öllum skyldum forsetans yfir á forseta Alþingis.

Hvað varðar persónukjörið er það mjög athyglisverð tillaga hjá hv. þingmanni og ég leyfi mér að benda á að ég var í allsherjarnefnd þegar við tókum frumvarp forsætisráðherra um persónukjör fyrir í tvígang. Þar var til dæmis farið yfir hinar ýmsu gerðir persónukjörs og það eru til ýmsar útfærslur og leiðir í persónukjöri, sumar betri en aðrar. Það verður á endanum endanlegt mat manna hvaða kosningakerfi menn vilja búa við. Það þarf að skoða áhrif persónukjörs á stjórnmálaflokka því að þeir eru að vissu leyti vettvangur hugmyndafræði sem þarf að fylkja sér um (Forseti hringir.) en það þarf að fara varlega í þær breytingar.

Ég mun svo reyna að svara síðustu spurningu þingmannsins í seinni umferð.