stjórnarskipunarlög.
Virðulegur forseti. Fyrst bara nokkur orð um feril málsins, hvernig ég sé fyrir mér að hann verði í kjölfarið og hvernig ég lít á að hann hafi verið. Mér finnst ferillinn hafa verið afskaplega ánægjulegur í þessu máli og til mikillar eftirbreytni og mér finnst full nauðsyn á að minna á hvað það er sem við ákváðum að gera. Nokkrir þingmenn hafa farið nokkrum orðum um það. Það var sem sagt í rauninni ákveðið, og ekki að ástæðulausu, að útvista því verkefni að skrifa þjóðinni nýja stjórnarskrá, frumsamda stjórnarskrá. Það hefur gengið brösuglega allan lýðveldistímann að skrifa stjórnarskrá sem er ekki bara bráðabirgðastjórnarskrá vegna þess að núgildandi stjórnarskrá, eins og margir þingmenn hafa komið inn á, var ekki ætlað að vera varanleg. Þetta verk gekk alltaf brösuglega og það var ekki bara út af hruninu eða þeim atburðum öllum saman sem var ákveðið að fara í stjórnlagaþing, þjóðfund og stjórnarskrárnefnd. Það var ákveðið hérna einróma að fara þá ferð sem við fórum í.
Núna er ég óendanlega ánægður með afraksturinn. Við erum með rosalega vandaða tillögu að stjórnarskrá, frumvarp til stjórnarskipunarlaga. Þegar ég ákvað í gærkvöldi að lesa aftur núverandi stjórnarskrá rann það ljós upp fyrir mér hvílík verðmæti felast í þessum tillögum. Eftir að hafa lesið þær nokkrum sinnum og farið í saumana á skýringum og greinargerð uppgötvaði ég allt í einu að í huganum var ég eiginlega farinn að ganga út frá því að þetta væri stjórnarskrá Íslendinga. Þegar ég las núverandi stjórnarskrá fannst mér til samanburðar hún eiginlega strax orðin úrelt.
Það lýsir sér meðal annars í því, ef maður gerir ákveðna hugsanaæfingu, að ímynda sér hvaða samkoma í samfélaginu mundi núna skrifa stjórnarskrá sem væri eins og núverandi stjórnarskrá er. Hún er ekki nútímaleg. Hún er að meginhluta til um forseta og völd hans sem hann þó hefur ekki. Það er verið að bögglast þarna með einhvers konar kóngafyrirkomulag og röð kaflanna er ekki í þeim anda sem maður mundi vilja sjá. Það eru óskýr mörk milli löggjafarvaldsins og framkvæmdarvaldsins svo dæmi sé tekið og á undanförnum árum hafa margoft komið upp deilur út af þessu.
Það er ekkert auðlindaákvæði, svo annað dæmi sé tekið, og eins og vinna stjórnlagaráðs sýndi áttum við enn þá langt í land með að mannréttindaákvæðin væru nægilega góð og í takt við alla þá mannréttindasáttmála sem við höfum undirgengist.
Í því ljósi að þetta er mjög vandað plagg vona ég heitt og innilega að við náum að klára þetta. Þó að margir hafi ýmislegt út á plaggið að setja heyrist mér mjög margir taka undir að þetta verði mun betri stjórnarskrá en sú sem við búum við núna. Ég hef alltaf gert ráð fyrir að málið kæmi hingað til efnislegrar umræðu og oft talið fulla þörf á að minna á það þegar hér hafa verið miklar orðahnippingar út af því. Nú er komið að því og þá finnst mér að við verðum að fara í þá umræðu af mikilli sanngirni. Við verðum að láta af orðhengilshætti. Það er alltaf hægt að fara í orðhengilshátt þegar maður skoðar lagatexta og bara yfirleitt þegar maður umgengst tungumálið og við svona viðamikið frumvarp er eðlilega margt sem manni finnst orka tvímælis þegar maður les það fyrst. Maður þarf að melta það aðeins og skoða skýringarnar en það sem gleður mig og gerir plaggið í mínum huga að vönduðu plaggi er að hver einasta grein er þó útskýrð. Maður verður að skoða útskýringarnar í mjög mörgum tilvikum.
Mér finnst mikilvægt að við missum þetta mál ekki núna á kosningaári út í einhvers konar bitbein milli stjórnar og stjórnarandstöðu og að stjórnarandstaðan keppist við að koma í veg fyrir, jafnvel með aðfinnslum um aukaatriði, að þetta verði tekið til afgreiðslu. Að sama skapi verða stjórnarflokkarnir að varast að leggja of mikið kapp á að þetta verði afgreitt í tæka tíð. Núna verðum við einfaldlega að sjá hversu mikill efnislegur ágreiningur er til staðar og fara í það af einlægni að skoða hvort við náum ekki örugglega samstöðu um þetta plagg.
Eftir að hafa hlustað á umræðuna í gær og núna í dag er ég vongóður um að ef við viljum í einlægni klára þetta ættum við að geta gert það. Mér finnst við skulda þjóðinni að við sýnum jafnmikla vandvirkni og jafnmikla getu til samstarfs og stjórnlagaráð gerði. Hérna hafa farið fram alveg ágætisumræður um ýmsa kafla þessa frumvarps og ég heyri ekki betur en að með aðeins meiri umræðu ættum við að geta náð lendingu um þessa kafla. Við eigum að láta það verða okkar plan A á þessari stundu að ná samstöðu um þessa stjórnarskrá. Ég get ekki betur séð en að það ætti að vera hægt.
Svo getum við alveg haft plan B, að samþykkja tillögu hv. þm. Péturs Blöndals um að breyta bara 79. gr. núverandi stjórnarskrár um það hvernig við breytum stjórnarskránni. Það mundi þá opna fyrir að við héldum áfram þessari umræðu, ef við metum það svo að við þurfum þess, eftir næstu kosningar og samþykkjum þá breytta og nýja stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslu sem yrði bindandi. Ég held að við verðum að vera opin fyrir því en opna aðeins á þann möguleika ef við teljum að við þurfum meiri tíma til að ræða málið efnislega.
En nú ætla ég að ræða málið efnislega og fara fyrst í það hvað ég tel gott við frumvarpið.
Það er miklu betri mannréttindakafli. Þarna eru tekin inn ýmis ákvæði sem við erum búin að undirgangast í alþjóðlegum mannréttindasáttmálum. Það er sett þarna inn og ég held að það sé mjög gott að í stjórnarskrá okkar séu allar þær mannréttindaskuldbindingar sem við erum búin að undirgangast annars staðar. Ég fagna því mjög að náttúran og umhverfisvernd eru sett undir mannréttindakafla. Ég fagna mjög auðlindaákvæðinu, það hefur gengið illa að koma því í stjórnarskrá hingað til og þarna er komin ágætlega og vel orðuð klausa um það. Það er mjög mikilvægt að það gamalkunna álitamál sé útkljáð.
Að mínu viti er miklu skýrari þrískipting, þ.e. miklu skýrari mörk milli löggjafarvalds, framkvæmdarvalds og dómsvalds, í þessari stjórnarskrá en þeirri sem við höfum núna.
Þingræðið er eflt. Mér finnst það rauður þráður í þessu frumvarpi. Það er tekin upp svokölluð jákvæð þingræðisregla, þingið kýs forsætisráðherrann og hefur úrslitavald um það þó að forsetinn geri tillögu, a.m.k. tvær en ekki þá þriðju, þannig að valdið er hjá þinginu. Ráðherrar sitja ekki á þingi og að mörgu leyti er staða forseta Alþingis styrkt og honum ætlað að vera forseti alls Alþingis. Alþingi fer eitt með löggjafarvaldið og það er ekki þessi flækja sem er í núverandi stjórnarskrá þar sem forsetinn fer líka með löggjafarvaldið en þó ekki. Það er óskýrt núna.
Þetta er það helsta sem ég tel þarna til bóta. Mér finnst þetta líka að meginhluta til mjög skýr tillaga að stjórnarskrá, mér finnst ég skilja þetta vel. Það eru til dæmis falleg og innblásin aðfaraorð en ekkert í þeim dúr er að finna í núverandi stjórnarskrá.
Síðan er mikilvægt, eins og ég gat um áðan, að við nálgumst þennan texta af sanngirni og reynum að skilja hann. Þarna eru hlutir sem maður telur sig kannski ekki alveg skilja við fyrstu sýn, eins og orðalagið í mannréttindaákvæðunum. Í 10. gr. stendur:
„Öllum skal tryggð vernd gegn hvers kyns ofbeldi …“
Þetta er breyting frá núverandi stjórnarskrá, hér er fastar að orði kveðið. Eftir að hafa lesið skýringarnar skil ég þetta betur. Ef maður væri með orðhengilshátt gæti maður flutt innblásna ræðu um hvort það eigi virkilega bara að skaffa öllum Íslendingum lífverði. Á að tryggja vernd gegn hvers kyns ofbeldi, ha, á hverjum degi, allan sólarhringinn? Þetta væri orðhengilsháttur. Mér finnst ég þurfa að lesa skýringarnar.
Svona orðalag er í mannréttindasáttmálum. Ef ég skil það rétt er þetta algengt orðalag í þeim mannréttindasáttmálum sem við höfum undirgengist. Síðan er líka farið ágætlega yfir það í skýringunum að mannréttindi eru margs konar, það er talað um nokkrar kynslóðir í þeim efnum, fyrsta stigs og annars stigs. Það er auðvitað þannig með ýmisleg svona mannréttindi, t.d. málfrelsi, að slík réttindi er hægt að tryggja með lagasetningu. Maður má tala svo lengi sem hann ber ábyrgð á orðum sínum fyrir dómi. Það er ekkert sérstaklega flókið.
Félagsleg réttindi getur hins vegar þurft að tryggja í áföngum á ákveðnum tíma. Skýrt dæmi um slík réttindi er að allir Íslendingar á skólaskyldualdri skulu hafa endurgjaldslausan aðgang að námi. Á þeim tíma þegar það var sagt fyrst, fyrir kannski nokkrum áratugum, var samfélagið ekki endilega þannig. Það þurfti að vinna að því og núna er það sjálfsagt.
Það er þannig með sum ákvæðin í mannréttindakaflanum að þau eru nokkuð sem við ákveðum að stefna að en eru kannski ekki að fullu tryggð núna. Við munum þá taka þá afstöðu, ef við samþykkjum þetta svona, að stefna að því að samfélagið verði þannig. Við þurfum að gera það með margs konar hætti, eins og með þessu:
„Öllum skal tryggð vernd gegn hvers kyns ofbeldi …“
Það þarf að skoða mjög marga hluti til að ná að búa til þannig samfélag að þessu markmiði verði náð sem best. Mér finnst ég skilja mannréttindakaflann betur eftir að ég er búinn að fara aðeins í saumana á þessu orðalagi og skilja hvað hér er um að ræða.
Annað sem hefur verið rætt hérna og kemur sumum greinilega spánskt fyrir sjónir er að ríkisstjórn taki ákvarðanir sameiginlega í mikilvægum málum og að mikilvæg mál skuli ákveðin með lagasetningu. Þetta þarf að melta, þ.e. hvaða mál eru mikilvæg. Á móti má spyrja: Er ekki mjög gott að hér sé tekin reglulega umræða við lagasetningu um hvað eru mikilvæg mál? Er það ekki einmitt það sem stjórnarsáttmáli gengur út á og ríkisstjórnarmyndun, að fólk ákveður hvað er mikilvægt og hvað ekki? Ég hugsa að það geti verið lýðræðinu hollt sem og stjórnskipuninni að sú umræða sé tekin við lagasetningu hvað er mikilvægt.
Ég er að tæpa á hinu og þessu hér. Þetta er mjög yfirgripsmikið en meginþráðurinn er sá að mér finnst ég yfirleitt finna góðar útskýringar á álitaefnum. Þó eru hérna einkum tvær greinar sem ég ætla að geta um að þessu sinni sem ég staldra við og fæ ekki alveg botn í. Það er annars vegar 66. gr., að tíu af hundraði kjósenda geti lagt fram frumvarp til laga fyrir Alþingi. Hún er óskýr vegna þess að í 1. mgr. segir að tveir af hundraði kjósenda geti lagt fram frumvarp til laga. Strax í næstu málsgrein segir:
„Tíu af hundraði kjósenda geta lagt frumvarp til laga fyrir Alþingi.“
Þetta er sama setningin, bara 2% og 10%, það þarf greinilega að gera einhvern greinarmun á því um hvað er að ræða. Mér finnst almennt við þessa grein óskýrt hvað Alþingi er í þessu. Alþingi er samsafn þingmanna og Alþingi kemur sjaldan fram sem einn aðili og það þarf að skýra hvað gerist ef það er ekki sátt á Alþingi um hvernig eigi að bregðast við svona frumvarpi frá þjóðinni. Hvernig á meðferð slíks frumvarps að fara fram, hver er fulltrúi þjóðarinnar? Eru ekki þingmenn fulltrúar þjóðarinnar? Þetta er svolítið óljóst.
Hin greinin er að alþingismanni (Forseti hringir.) sé óheimilt að taka þátt í meðferð þingmáls sem varðar sérstaka og verulega hagsmuni hans. Þetta held ég að sé (Forseti hringir.) varasamt. Það kann að vera erfitt að binda hendur þingmanna sem eru kjörnir lýðræðislega og á alls konar forsendum.